Fréttasafn

|

25.02.2021

Jörð skelfur á suðvestur horninu

Móðir náttúra er að minna á sig þessa dagana. Þó svo að jarð­skjálftar geri sjaldnast boð á undan sér þá vitum við núna að það má búast við þeim áfram á suðvestur horninu og þá jafnvel stórum skjálfta.

Það er mikil­vægt að vita réttu viðbrögðin við jarð­skjálftum og hvað hægt er að gera heima til að vera öruggari þar og minnka líkur á tjónum. Það getur gert gæfumuninn að vera búin að sinna forvörn­unum og ákveða hvernig við ætlum að bregðast við ef stór skjálfti kemur.

For­varn­ir á heim­il­inu

  • Festa skápa og hillur við veggi og/eða gólf.

  • Hafa þunga hluti, t.d. styttur, ekki ofar­lega í hillu.

  • Festa sjón­vörp við borð eða veggi.

  • Hafa rúm ekki undir gluggum.

  • Festa myndir og ljósakrónur í lokaðar lykkjur.

  • Setja örygg­is­læs­ingar á skápa til að varna því að brot­hættir hlutir detti út úr þeim.

Viðbrögð við jarð­skjálfta

  • Þegar jarð­skjálfti verður er mikil­vægt að hver og einn verji sig fyrir slysum. Einkunn­arorð þar eru að krjúpa, skýla og halda. Gott getur verið að fara í horn á herbergi eða undir borð eða annað sem veitir skjól. Ekki er mælt með því að hlaupa út, sérstak­lega ef um einhverja vega­lengd þarf að fara, þar sem erfitt er að fóta sig þegar allt er á hreyf­ingu.

  • Eftir jarð­skjálftann verjið fætur með því að fara í skó.

  • Ef vatns­lagnir hafa gefið sig skrúfið fyrir vatns­inn­takið.

  • Ef gaseldavél er á heim­ilinu skrúfið fyrir gaskútinn þar sem mögu­leiki er á að samskeyti hafi farið í sundur.

  • Ef slys verður á fólki hringið í 112.

Nánari upplýs­ingar má finna á vis.is.

Fréttasafn
Deila frétt