Fréttasafn

|

12.07.2021

Hviðuspá komin á blika.is

Á ferð um landið getur oft verið erfitt að átta sig á vind­hviðu­hættu.

Þrátt fyrir hægan meðal­vind geta orðið vara­samar vind­hviður á svæðum með ákveðin land­fræðileg einkenni. Illmögu­legt er fyrir flesta að þekkja alla slíka staði. Núna eru komnir nokkrir þekktir vind­hviðu staðir á þjóð­vegum landsins undir Hviður á blika.is. Fleiri þekktir hvið­ustaðir eiga svo eftir að bætast við þegar fram líða stundir.

Spáin nær þrjá daga fram í tímann og er uppfærð fjórum sinnum á sólar­hring. Með þessum upplýs­ingum er mun auðveldara að vera ekki á ferð­inni þegar aðstæður geta verið varhuga­verðar.

Lítil breyting á vindi getur haft mikil áhrif á vind­hviður. Því er gott að fylgjast vel með rétt áður en lagt er af stað. Talað er um að ef hviður ná 30 m/sek sé ekki æski­legt að vera á ferð­inni á fólksbíl og ef eftir­vagn er með í för eða verið er á húsbíl þá er miðað við að vera ekki á ferð­inni ef hviður eru meira en 20 m/sek.

Fréttasafn
Deila frétt