Fréttasafn

|

19.07.2021

Hring­torg vefjast fyrir

Þau sem taka við tjónstil­kynn­ingum hjá VÍS hafa tekið eftir að tjón í hring­torgum eru áber­andi þessi miss­erin.

Tjón þar sem ágrein­ingur er oft á milli ökumanna hver á réttinn og endar oft í helm­ings­skipt­ingu í tjóns­upp­gjöri. Þegar tölur eru rýndar kemur í ljós að núna erum við komin í 80% af fjölda skráðra tjóna í hring­torgum miðað við sama tíma í fyrra. Algeng atvik þar má nefna er ökumaður á ytri hring veitir ekki forgang þeim sem er á útleið úr innri hring. Nú hefur umferð aukist aftur eftir COVID og því ekki úr vegi að rifja upp helstu reglur sem gilda um hring­torg, sér í lagi þar sem eru tvær akreinar.

  • Ökumaður í ytri hring skal veita þeim sem ekur í innri hring forgang út úr hring­torgi.

  • Ökumaður á að velja ytri hring ætli hann að aka út úr hring­torginu á fyrstu gatna­mótum.

  • Óheimilt er að skipta um akrein við hring­torg.

  • Óheimilt er að skipta um akrein þ.e. á milli ytri og innri hrings í hring­torgi.

  • Notkun stefnu­ljósa í hring­torgum segir öðrum hvert ferð er heitið, eykur umferðaflæði og minnkar líkur á tjónum.

Fréttasafn
Deila frétt