Fréttasafn

|

21.05.2021

Höfum lásinn öflugri en þjóf­inn!

Læsum hjólinu alltaf með öflugum lás en ekki lás sem lítið mál er að klippa í sundur.

Hjól hafa sjaldan verið vinsælli en nú, þar sem hægt er að slá margar flugur í einu höggi í hjól­reiða­mennsk­unni. Reið­hjól eru umhverf­i­s­vænn ferða­máti sem og góð samgöngu­tæki. Svo er hægt að njóta útivistar og hreyfa sig í leið­inni.  Verð­mæti hjóla getur verið mikið og því miður er þjófn­aður á hjólum alltof algengur. Því er ástæða til að minna á að læsa hjól­unum alltaf tryggi­lega. Mikil­vægt er að læsa þeim jafn utan­dyra og jafnvel innan­dyra eins og í sameig­in­legri hjóla­geymslu.

En lás er ekki bara lás. Gæðin skiptir gríð­ar­lega miklu máli. Einnig skiptir máli hvernig hjólinu er læst. Lásinn kemur þó ekki í veg fyrir að hjólinu sé stolið ─ en með vönd­uðum lás er það mun erfið­ara. Lásar hafa öryggis­ein­kunn sem segir til um hversu auðvelt er að pikka lásinn upp eða klippa hann í sundur. Eftir því sem einkunnin er hærri, því öflugri er hann.  Það tekur einungis augna­blik að klippa lás í sundur sem hefur lága öryggis­ein­kunn. Ekki er mælt með vírlási, heldur vönd­uðum og öflugum lási á borð við keðjulás eða svokall­aðan U-lás eða tommu­stokkslás.  

Það getur verið til lítils að læsa dekkinu og stellinu saman þar sem einfalt er að kippa hjólinu með sér þannig. Alltaf að læsa hjólinu við eitt­hvað vegg- eða jarð­fast ─ og í gegnum stellið, en ekki dekk­ið. 

Fréttasafn
Deila frétt