Fréttasafn

|

06.06.2021

Gjöf til íslenskra sjómanna

Á sjómannadaginn var sjómönnum færð vegleg gjöf frá VÍS því atvika­skrán­ing­ar­kerfið ATVIK-­sjó­menn var form­lega afhent Rann­sókn­ar­nefnd samgöngu­slysa til eignar og rekst­urs.

Fremst sitja þau Hafdís Hans­dóttir, fram­kvæmda­stjóri þjón­ustu hjá VÍS, og Þorkell Ágústs­son, rekstr­ar­stjóri Rann­sókn­ar­nefndar samgöngu­slysa. Fyrir aftan frá vinstri; Jón Gunnar Jóns­son, forstjóri Samgöngu­stofu, Hilmar Snorra­son, skóla­stjóri Slysa­varna­skóla sjómanna, Gísli Níls Einars­son, sérfræð­ingur í forvörnum og hugmynda­smiður að ATVIK-­sjó­menn, Halldór Ármanns­son, formaður Sigl­inga­ráðs, og Eggert Ólafs­son, lögfræð­ingur sigl­inga­mála hjá samgöngu­ráðu­neyt­inu.

Undan­farin fimm ár hefur VÍS hannað og þróað atvika­skrán­ing­ar­kerfið ATVIK-­sjó­menn með það að mark­miði að fækka slysum á sjó. Þetta er gjöf frá VÍS til íslenskra sjómanna, samfé­laginu til heilla. Afhend­ingin fór fram um borð í skóla­skipinu Sæbjörg­u hjá Slysa­varna­skóla sjómanna.

Þrátt fyrir góðan árangur síðustu ára í fækkun bana­slysa á sjó, þá er enn tals­vert langt í land að fækka slysum hjá sjómönnum. Að meðal­tali eru 170 sjóslys tilkynnt til Sjúkra­trygg­inga Íslands á hverju einasta ári. Hins vegar er það áhyggju­efni að einungis 30% þessara slysa eru tilkynnt til Rann­sókn­ar­nefndar samgöngu­slysa ─ sem einmitt hefur það hlut­verk að rann­saka slysin, greina þau og koma með tillögur að forvörnum. Jafn­framt hefur skort að atvik og óhöpp sem leitt geta til alvar­legra slysa séu tilkynnt sem skildi. Með virkri skrán­ingu þeirra gefst betri kostur á fyrir­byggj­andi aðgerðum og forvörnum áður en alvarleg slys hljótast af.

Hreyfiafl í örygg­is­málum sjómanna

Frá árinu 2017, hefur atvika­skrán­ing­ar­for­ritið ATVIK-­sjó­menn verið mikil­vægur hluti af rafrænu forvarn­ar­starfi VÍS í örygg­is­málum sjómanna. VÍS hefur verið á öflugri staf­rænni vegferð undan­farin ár og staf­rænar forvarnir eru mikil­vægur hluti af starf­semi félagsins ─ en viðskipta­vinir VÍS eiga að lenda sjaldnar í tjóni. Tilgang­urinn með ATVIK er að fækka slysum til sjós og stuðla þar með að öruggari vinnu­um­hverfi um borð í fiski­skipum. Síðan VÍS hóf öflugt forvarn­ar­sam­starf með útgerð­unum árið 2009, hefur það verið leið­ar­ljós félagsins að vera hreyfiafl í örygg­is­málum sjómanna og hjálpa útgerð­unum að fækka slysum. Á fjórða tug fiski­skipa og um 800 sjómenn nýta sér nú ATVIK til þess að fá betri yfirsýn yfir örygg­is­málin og mögu­legar hættur. Þannig skapast tæki­færi fyrir fyrir­byggj­andi aðgerðir. Hægt er að skrá atvik og taka myndir í öllum snjall­tækjum hvort sem er símum eða spjald­tölvum, hvar sem er um borð í fiski­skipum. Notkun ATVIKs hefur leitt til fækk­unar á slysum, t.d. fallslysum, eftir ábend­ingar um hættur eða í kjölfar slysa.

Bylting fyrir sjómenn

VÍS hefur ákveðið að gefa Rann­sókn­ar­nefnd samgöngu­slysa ATVIK-­sjó­menn til þess að leggja sitt á vogar­skál­arnar til að fækka slysum á sjó. ATVIK-­sjó­menn er í raun bylting í örygg­is­málum sjómanna þar sem hægt verður að tilkynna slysin beint til Rann­sókn­ar­nefndar samgöngu­slysa með rafrænum hætti. Því verður ekkert til fyrir­stöðu hjá útgerð­unum að öll atvik, óhöpp og slys séu tilkynnt til nefnd­ar­innar. Til verður einn sameig­in­legur gagna­grunnur sem auðveldar alla grein­ing­ar­vinnu. Gagn­virkt mæla­borð veitir svo yfirsýn yfir öll skráð atvik og slys ─ sem eiga eftir að nýtast strax til að greina áherslur í forvörnum. Þetta þýðir jafn­framt að allar útgerð­irnar hafa aðgang að ATVIK til þess að fá yfirsýn yfir örygg­ismál um borð í sínum skipum. ATVIK-­sjó­menn gjör­breytir öllum mögu­leikum, árangri og gæðum örygg­is­stjórn­unar til sjós. Jón A Ingólfs­son, rann­sókn­ar­stjóri sjósviðs Rann­sókn­ar­nefndar samgöngu­slysa, segir þetta vera bylting fyrir íslenska sjómenn. „Þetta er mjög rausn­arleg gjöf og mun gjör­breyta örygg­is­málum hjá útgerð­unum. Betri yfirsýn yfir hættur eru algert lykil­at­riði svo hægt sé að koma í veg fyrir slys. Þetta eru því bylting fyrir íslenska sjómenn.“

Fækkum slysum á sjó

Gísli Níls Einars­son, sérfræð­ingur í forvörnum hjá VÍS og hugmynda­smiður að ATVIK-­sjó­menn, er stoltur af gjöf­inni. „Ég fyllist mikilli bjart­sýni og stolti yfir þessari gjöf til Rann­sókn­ar­nefndar samgöngu­slysa og Samgöngu­stofu. Nú erum við að taka risa­stórt skref í átt til fram­tíðar með staf­rænum forvörnum á sjó. Við erum í raun­inni að taka örygg­is­menn­ingu sjómanna upp á næsta stig ─ og fækka slysum á sjó. Við hjá VÍS erum gríð­ar­lega stolt af því að gera lagt okkar af mörkum í örygg­is­málum sjómanna til fram­tíð­ar.”

Rann­sókn­ar­nefnd samgöngu­slysa mun form­lega taka yfir alla hýsingu, rekstur, þjón­ustu og þróun á ATVIK-­sjó­menn með haust­inu. Samgöngu­stofa mun taka þátt í uppfærslu kerf­is­ins, viðhaldi og kynn­ingu. Deloitte mun taka þátt í þarf­agrein­ingu kerf­isins án endur­gjalds.

Fréttasafn
Deila frétt