Fréttasafn

|

10.05.2021

Forvarna­sam­starf til fyrir­myndar

VÍS og Strætó hafa ákveðið gefa öllum starfs­mönnum Strætó Fitbit heilsuúr.

Þetta er hluti af öflugu forvarna­sam­starfi fyrir­tækj­anna — en Strætó tryggir hjá VÍS. Samtals eru þetta 280 heilsuúr en úrin eru öflugt tól til þess að fylgjast með heils­unni — og gefa góða vísbend­ingu um hvað megi bæta. Úrin sýna skrefin í hverjum göngutúr sem og kíló­metrana sem voru farnir. Einnig er hægt er að fylgjast með lengd og gæðum svefns.

Setjum heilsuna í fyrsta sæti

Forvarnir eru mikil­vægur þáttur í samstarfi fyrir­tækj­anna — og skýrt ákvæði er í samstarfs­samn­ingi fyrir­tækj­anna um að verja ákveð­inni upphæð í forvarnir á hverju ári. Áhersl­urnar í forvarna­sam­starfinu hafa verið fjöl­breyttar — en í ár er kast­ljósinu beint að streitu og hvernig hægt sé að koma í veg fyrir hana. Skila­boðin í ár eru því skýr: „Hreyfum okkur saman í sólinni og setjum heilsuna í fyrsta sæti.“

Hugmyndin er að hvetja starfs­fólk Strætó áfram í því að setja heilsuna í fyrsta sæti — og nýta tæknina til þess. Regluleg hreyfing og svefn eru nefni­lega grunnur að góðri heilsu og góð leið til þess að vinna á móti streitu. „Aldrei hefur verið jafn mikil­vægt að hlúa að heils­unni og nú, í miðjum alheims­far­aldri. Mælingar okkar hafa sýnt að streita hefur aukist og við viljum grípa strax í taumana. Við treystum því að heilsu­úrin verði góð áminning fyrir starfs­menn okkar að huga að svefni og reglu­legri hreyf­ingu“ sagði Sigríður Harð­ar­dóttir, sviðs­stjóri mannauðs- og gæða­sviðs Strætó.

Mikilvæg skilaboð til starfs­manna Strætó

Helgi Bjarna­son, forstjóri VÍS, er stoltur af samstarfinu „Ég er stoltur af samstarfinu við Strætó — og er ánægður með áherslur fyrir­tæk­isins á forvarnir en Strætó hefur verið til mikillar fyrir­myndar í öryggis- og forvarna­málum. Við ætlum að breyta því hvernig trygg­ingar virka og þetta er gott dæmi um öflugt samstarf þar sem áherslan er á forvarnir og að nýta tæknina til þess." Jóhannes S. Rúnars­son, fram­kvæmda­stjóri Strætó, tekur undir þessi orð „Strætó og VÍS leggja mikla áherslu á öryggis- og forvarn­ar­mál, bæði í orði og borði. Því hefur samstarfið verið virki­lega ánægju­legt og til mikillar fyrir­mynd­ar.“

Heims­markmið Sameinuðu þjóð­anna eru mikil­vægt leið­ar­ljós hjá VÍS, ekki síst heims­markmið númer þrjú sem fjallar um heilsu og vellíðan. „Við leggjum því ríka áherslu á öflugar forvarnir í samstarfi við viðskipta­vini okkar. Góð andleg og líkamleg heilsa er grunn­urinn að góðri líðan — því er þetta mikilvæg skilaboð til starfs­manna Strætó" sagði Helgi Bjarna­son, forstjóri VÍS, að lokum.

Fréttasafn
Deila frétt