Fréttasafn

|

28.07.2021

Förum að öllu með gát um helgina

Aftur sér Covid um að breyta plönum margra um Versl­un­ar­manna­helg­ina.

Hvað sem taka á sér fyrir hendur gleymum ekki sótt­vörn­unum og förum með gát í umferð­inni þar sem hraði, þreyta, athygli og vímu­efni eru helstu áhrifa­þættir slysa. Gerum allt sem við getum til að koma heil heim og höfum í huga að:

  • Bíllinn sé í lagi.

  • Skoða veðurspá og gera ráðstaf­anir ef miklar vind­hviður eru í kortum.

  • Sýna öðrum tillits­semi í umferð­inni.

  • Ökumaður sé úthvíldur og alls­gáður.

  • Allir í bílnum séu í réttum örygg­is­bún­aði.

  • Athyglin sé við akst­ur­inn.

  • Hámarks­hraði sé virtur.

  • Nægt bil sé á milli bíla.

  • Framúrakstur sé eingöngu fram­kvæmdur við öruggar aðstæður.

Fréttasafn
Deila frétt