Fréttasafn

|

21.04.2021

Eru dekkin klár fyrir sumarið?

Samkvæmt daga­talinu er tími nagla­dekkj­anna liðinn. Nú er því réttur tími til þess að yfir­fara dekkin sem á að nota í sumar. Enginn ætti nefni­lega að gefa afslátt af dekkj­unum ─ því góð dekk skipta miklu máli.

  • Dekk hafa líftíma eins og margt annað. Almennt er mælt með að aka ekki á eldri dekkjum en 10 ára.

  • Mynst­urs­dýpt yfir sumarið má ekki vera minni en 1,6 mm og á það við um allt mynstrið en ekki bara hluta þess. 

  • Réttur loft­þrýst­ingur eykur stöðu­leika, styttir stöðv­un­ar­vega­lengd, minnkar eyðslu bíls og slit dekkja.

  • Dekk fólks­bíla sem eru 3.500 kg eða minna að þyngd verða öll að vera sömu gerðar.

  • Sekt við að aka á nöglum frá 15. apríl til 31. október er kr. 20.000.- á dekk.

  • Tilvalið er að láta fagmenn meta gæði dekkj­anna, ef þú ert í vafa.

  • Hrein dekk virka mun betur en dekk sem hafa sem hafa t.d. safnað tjöru á sig. 

Fréttasafn
Deila frétt