Fréttasafn

|

11.10.2021

Ertu nokkuð á skautum?

Það er ekki hress­andi að lenda í því að skauta áfram á lélegum dekkjum þegar vetur konungur bankar upp á með snjó og hálku. Við getum aldrei verið alveg viss hvenær það gerist og þá er gott að vera undir­búin.

Góð dekk eru án efa einn af mikil­væg­ustu örygg­is­þáttum hvers og eins ökutækis og við hvetjum þig til að skoða þín. Mynstur­dýpt vetr­ar­dekkja þarf að vera að lágmarki þrír milli­metrar og loft­þrýst­ing­urinn í lagi, alveg eins og blóð­þrýst­ing­ur­inn. Til að dekra svo aðeins við dekkin þá mælum við með því að tjöru­hreinsa þau reglu­lega til þess að auka gripið.

Það marg­borgar sig að vera á góðum dekkjum. Þau auka stöð­ug­leika, stytta heml­un­ar­vega­lengd, minnka líkur á að bíllinn fljóti upp í bleytu og krapa og síðast en ekki síst þá verður eyðslan minni.

Þarft þú að kaupa ný dekk?

Við hvetjum viðskipta­vini okkar til að kynna sér fríð­inda­síðu okkar en þar geta þeir fengið allt að 25% afslátt af dekkjum.

Fréttasafn
Deila frétt