Fréttasafn
|11.06.2021
Ertu með góða hugmynd í mallanum?
Ef þú ert með góða hugmynd í mallanum þá hvetjum við þig til þess að kynna þér Nýsköpunarsjóð VÍS.

Hefurðu kynnt þér Nýsköpunarsjóð VÍS?
Við úthlutum úr sjóðnum einu sinni ári og við styrkjum verkefni sem falla undir nýsköpun — og þá sérstaklega þeim sem snúa að líkamlegri og andlegri heilsu. Samtals eru þetta tíu milljónir og eitt til fimm verkefni fá úthlutað úr sjóðnum.
Styrktarnefnd VÍS, ásamt sérfræðingum í nýsköpun, fara yfir innsendar umsóknir. Við mat á umsóknum er horft til eftirfarandi þátta: nýsköpunar, forvarna, stafrænnar nálgunar og sjálfbærni.
Umsóknarfrestur er til og með 29. janúar 2023. Umsóknir á að senda á netfangið nyskopun@vis.is með upplýsingum um verkefnið, kostnað, tímaáætlun og tengilið. Úthlutað verður 16. febrúar 2023.