Fréttasafn

|

06.10.2021

Er slotið klárt fyrir vetur­inn?

Flestir tengja altjón á sumar­húsi við bruna en það getur líka gerst þegar vatn lekur. Sér í lagi ef einhver tími líður frá því að byrjar að leka og þar til lekinn uppgötv­ast. Því miður hefur orðið aukning á alvar­legum vatns­tjónum hjá okkur síðustu þrjú ár. Algeng­ustu orsak­irnar eru þegar frýs í lögnum eða þegar teng­ingar við vatns­tengd tæki gefa sig. Til að koma í veg fyrir slík tjón eru forvarnir gríð­ar­lega mikil­vægar og hvetjum við þig til að huga að þeim.

Hvað getum við gert til að koma í veg fyrir slíkt tjón?

  • Hafa vatns­skynjara sem gefur tilkynn­ingu um leka í síma.

  • Skrúfa fyrir inntak heita og kalda neyslu­vatnsins og tæma viðtengd tæki þegar bústaður er yfir­gef­inn.

  • Fara yfir teng­ingar vatns­tengdra tækja a.m.k. einu sinni á ári.

  • Fá tilkynn­ingar ef bústaður verður rafmagns- og/eða heita­vatns­laust. Við það getur kólnað hratt sem getur orsakað bilanir á tækjum og vatns­lögnum, sér í lagi að vetri til.

  • Nota hita­þræði við vatns­lagnir þar sem hætt er við að frjósi í.

  • Hafa vatns­inntak í sér rými fyrir utan húsið.

  • Hafa lokað hringrás­ar­kerfi á upphitun bústaðar og gæta þess að yfir­fara frost­lag­ar­blönduna samkvæmt upplýs­ingum fram­leið­anda.

Mikil­vægar eldvarnir sem ekki má gleyma:

  • Virkir reyk­skynj­ar­ar í öllum rýmum. Reyk­skynj­arar með 10 ára rafhlöðu eru góður kostur. Ef þess nýtur ekki við þá skipta um 9 volta rafhlöðu árlega.

  • Eldvarn­arteppi á áber­andi stað í eldhúsi en þó ekki of nærri elda­vél.

  • Yfir­farið slökkvi­tæki við flótta­leið.

  • Tvær greiðar flótta­leiðir af svefn­lofti.

Inn á Öryggi passar má finna örygg­is­vörur sem margar hverjar eru á afslætti fyrir VÍSara. 

Fyrir nánari upplýs­ingar um öryggi í sumar­húsum er að finna á vis.is.

Fréttasafn
Deila frétt