Fréttasafn

|

08.01.2021

Appel­sínugul viðvörun á Aust­ur­landi

Útlit er fyrir mjög krappa lægð fyrir norðan land í fyrra­málið með snörpum vind­streng inn á norð­austan- og aust­an­vert landið.

Spáð er meðal­vindi allt að 23-28 m/s og er hætt við foki og skemmdum á húsum og lausa­munum utan­dyra. Einna hvassast verður á Aust­ur­landi en búast má við vind­hviðum allt að 40-50 m/s allt frá Húsavík austur að Kirkju­bæj­arklaustri.

Við hvetjum alla sem eru á ofan­greindu svæði að gera ráðstaf­anir og vera ekki á ferð­inni meðan veðrið gengur yfir. Appel­sínugul viðvörun er fyrir svæðið og er klókt að renna yfir ráðlegg­ingar okkar þegar þeim litakóða er spáð.

Fréttasafn
Deila frétt