Fréttasafn

|

31.08.2021

Ánægðari viðskipta­vinir

Ánægja viðskipta­vina okkar stað­festir að við séum á réttri leið og veitir okkur byr undir báða vængi.

Við höfum sagt frá því áður, en við ætlum að breyta því hvernig trygg­ingar virka. Það krefst hugrekkis og kjarks að hugsa hlutina upp á nýtt. Þess vegna erum við stolt af þeim nýjungum sem við höfum kynnt til sögunnar á árinu. Þarfir viðskipta­vin­anna eru nefni­lega leið­ar­ljósið í öllu okkar starfi ─ því við vitum að trygg­ingar snúast um fólk.

Bylt­ing­ar­kenndar nýjungar

Í upphafi árs kynntum við Öku­vís­i til leiks sem er bylt­ing­ar­kennd nýjung í ökutækja­trygg­ingum á Íslandi. Ökuvísir er app ─ og viðskipta­vinum okkar er verð­launað fyrir góðan og lítinn akstur með lægri iðgjöld­um. ­Ný­lega kynntum við til sögunn­ar ­stór­bætta ka­skó­trygg­ingu sem við teljum vera þá best­u hér á land­i, því hún er með víðtæk­ustu verndina sem völ er á. Þessar nýjungar hafa hlotið frábærar viðtökur hjá viðskipta­vinum okkar ─ sem við erum virki­lega mjög stolt af. Nú erum við að umbylta kaup­ferli líf- og sjúk­dóma­trygg­inga sem við hlökkum til að kynna til sögunnar á næstu vikum.

Ánægja ykkar hvetur okkur áfram

Ánægja viðskipta­vina okkar stað­festir að við séum á réttri leið og veitir okkur byr undir báða vængi. Fyrir það erum við auðmjúk og þakklát ─ alveg gríð­ar­lega þakk­lát! Við höldum áfram að hlusta á viðskipta­vini okkar ─ og breyta því hvernig trygg­ingar virka.  Til­gangur okkar er nefni­lega skýr ─ við erum traust bakland í óvissu lífs­ins.

Fréttasafn
Deila frétt