Fréttasafn

|

09.11.2021

„Afar farsælt samstarf“

Nýlega var skrifað undir samning milli Norð­ur­þings og VÍS um trygg­ingar sveit­ar­fé­lagsins til næstu þriggja ára.

Drífa Valdimarsdóttir, staðgengill sveitarstjóra Norðurþings, ásamt  Þorvaldi Þorsteinssyni, viðskiptastjóra hjá VÍS.

Drífa Valdimarsdóttir, staðgengill sveitarstjóra Norðurþings, ásamt Þorvaldi Þorsteinssyni, viðskiptastjóra hjá VÍS.

Farsælt samstarf hefur verið milli VÍS og Norð­ur­þings í hátt í fjóra áratugi og því er mikil ánægja með að samstarfið haldi áfram. Samn­ingur var gerður eftir útboð hjá Conscello ehf. ─ löggildri vátrygg­inga­miðlun.

Í samstarfinu hefur verið áhersla á forvarnir og stefnt er að því að Norð­ur­þing verði fremst meðal annarra sveit­ar­fé­laga í forvörnum.

„Ég er stoltur af því að samstarf milli VÍS og Norð­ur­þings haldi áfram. Þetta hefur verið afar farsælt samstarf ─ og ég hlakka virki­lega til fram­halds­ins.“ sagði Þorvaldur Þorsteins­son, viðskipta­stjóri hjá VÍS.

Drífa Valdi­mars­dóttir, stað­gengill sveit­ar­stjóra, var einnig ánægð með samstarfið sem og áherslu VÍS á forvarnir. „Sam­starfið við VÍS spannar fjóra áratugi og hefur gengið vel. Áhersla VÍS á forvarnir skiptir okkur miklu máli. Við erum því spennt að vinna að því mark­miði að vera fremst meðal annarra sveit­ar­fé­laga í forvörnum. Við hlökkum því til áfram­hald­andi samstarfs.“

Fréttasafn
Deila frétt