Fréttasafn

|

08.07.2021

Af hverju að bakka í stæði?

Algeng­ustu ökutækja­tjón hjá VÍS eru þau sem eiga sér stað þegar bakkað er.

Tjón sem eru sjaldnast alvarleg en ansi svekkj­andi. Með því að bakka í stæði má minnka líkur á þessum tjónum til muna. Þá er bakkað inn á öruggt svæði miðað við þegar bakkað er út úr stæði inn á svæði þar sem búast má við bílum úr nokkrum áttum ásamt hjólandi og gang­andi fólki.

Mörgum finnst þeir vera óöruggir þegar bakkað er í stæði en þar eins og í mörgu öðru skapar æfingin meist­ar­ann. Við hvetjum alla til þess að bakka ávallt í stæði þegar þess er kostur - það marg­borgar sig.

Fréttasafn
Deila frétt