Fréttasafn

|

10.11.2020

Yfir Laug­ar­dalsvöll endi­langan ef þú rétt kíkir á símann

Mikil hætta stafar af því þegar ökumenn eru ekki með fulla athygli við akst­ur­inn.

Alltof algengt er að ökumenn noti farsímann undir stýri, samkvæmt nýlegri könnun sem var fram­kvæmd fyrir VÍS. Ágúst Mogensen, sem er sérfræð­ingur í forvörnum og sérhæfir sig í umferðarör­ygg­is­málum, segir að mikil hætta stafi af því þegar ökumenn eru ekki með fulla athygli við akst­ur­inn.

Hann fjallaði um könn­unina og forvarnir í viðtali við Síðdeg­isút­varpið. Þar kom fram að könn­unin bendir til þess alltof margir freistist til þess að nota símann á meðan þeir keyra. Ágúst sagði að við gætum bætt okkur tölu­vert í þessum efnum því hættan sem stafar af notkun farsímans undir stýri gerir það að verkum að allt viðbragð verður seinna, því athyglin er einfald­lega ekki til staðar.

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin telur að farsíma­notkun undir stýri auki marg­falt hættuna á umferð­ar­slysi því ökumað­urinn er bregst alltof seint við hættu og stígur seinna á brems­una. Ágúst sagði að ökumenn átti sig ekki almenni­lega á hætt­unni sem farsíma­notkun hefur í för með sér. Hann nefndi að ef ökumaður myndi rétt kíkja á símann í fimm sekúndur væri hann búinn að keyra vega­lengd sem jafn­gilti því að keyra Laug­ar­dalsvöll endi­langan, ef við gefum okkur keyrslu á þjóð­veg­inum á 90 km hraða.

Fréttasafn
Deila frétt