Fréttasafn
|28.04.2020
Vorboðar komnir á stjá
Enginn er betur til þess fallinn að passa upp á bifhjólamanninn en hann sjálfur. Bæði hvað varðar akstur, hjólið og sýnileika. Tölfræðin sýnir að hraði vegur einna þyngst í þeim bifhjólaslysum sem verða í umferðinni en algengustu slysin eru útafakstur og slys á gatnamótum.

Bifhjólin eru skemmtilegur vorboði. Mikilvægt er að bílstjórar séu meðvitaðir um hjólin í umferðinni og horfi því vel í kringum sig. Sérstaklega þar sem umferð skarast; eins og á gatnamótum, að- og fráreinum og þegar skipt er um akrein Meiri líkur á að ökumaðurinn sjái síður bifhjól í umferðinni en önnur ökutæki.
Enginn er samt betur til þess fallinn að passa upp á bifhjólamanninn en hann sjálfur. Bæði hvað varðar akstur, hjólið og sýnileika. Tölfræðin sýnir að hraði vegur einna þyngst í þeim bifhjólaslysum sem verða í umferðinni en algengustu slysin eru útafakstur og slys á gatnamótum.
Til að tryggja öryggi sitt er gott að dusta rykið af forvörnunum áður en brunað er út í umferðina á hjólinu:
Vertu viss um að hjólið sé í standi.
Farðu fyrstu ferð ársins um öruggt svæði.
Ekki lána hjólið.
Notaðu alltaf viðurkenndan öryggisbúnað.
Tryggðu sýnileika.
Virtu umferðarlög og þá sér í lagi hámarkshraða.
Athugaðu að ástand vega getur verið mismunandi.
Vertu viss um að aðrir ökumenn viti af þér og sjái þig.
Líttu tvisvar þar sem umferð skarast.
Vertu vakandi fyrir merkingum um hvar megi aka.
Umfram allt, aktu varlega til þess að enda á réttum áfangastað en alls ekki á ,,slysó“.