Fréttasafn

|

18.05.2020

VÍS til fyrir­myndar

Við erum gríð­ar­lega stolt af því að VÍS hafi verið valið eitt af fyrir­mynd­ar­fyr­ir­tækjum VR ársins 2020.

Niður­staðan byggir á könnun sem send er á alla félags­menn VR og þúsundir annarra starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði. Þess má geta að könn­unin er ein viða­mesta vinnu­mark­aðs­könnun sem gerð er hér á landi. Fyrir­tæki ársins eru fimmtán talsins og eru fimm í hverjum stærð­ar­flokki. VÍS er í flokki stórra fyrir­tækja ársins ─ og er á þeim lista í fyrsta sinn.

Fyrir­tæki ársins 2020 eru:

  • Í flokki stórra fyrir­tækja: LS Retail, Nova, Sjóvá, VÍS og Vörður trygg­ingar.

  • Í flokki meðal­stórra fyrir­tækja: Hringdu, Hvíta húsið, Miðlun, Nordic Visitor og Tengi.

  • Í flokki lítilla fyrir­tækja: Egill Árna­son, Rekstr­ar­félag Kringl­unnar, Reon, Tryggja og Vett­vangur.

Fréttasafn
Deila frétt