Við bætum þér tjónið strax
Í allri inniverunni höfum við heldur betur treyst á tækin á heimilinu. Hvar værum við án sjónvarpsins? Nú, eða símans? Þess vegna er mikilvægt að fá tjónið bætt sem allra fyrst og það ætlum við að gera.
Ef þú lendir í tjóni, þá færðu þessa muni bætta strax:
- Símann
- Sjónvarpið
- Snjallúrið
- Gleraugun
- Matvælin
Í sumum tilvikum tökum við okkur örlítið lengri tíma. Til dæmis, ef stutt er síðan þú tilkynntir tjón, ef þú hefur lent í mörgum tjónum eða hefur verið hjá okkur í stuttan tíma.
Tilkynntu tjónið og fáðu tjónið bætt í einum grænum.
Við tökum vel á móti þér á stærstu þjónustuskrifstofunni okkar á vis.is - sem er opin allan sólarhringinn.