Fréttasafn

|

20.10.2020

Verum undir­búin ef stærri skjálfti verður

Móðir náttúra minnti hressi­lega á sig í gær með skjálfta upp á 5,6. Sérfræð­ingar tala um að skjálfta­hrina geti haldið áfram, jafnvel í einhverja daga. Við hvetjum alla til að auka öryggi sitt og sinna með því að fara vel yfir öryggið á heim­ilinu ef stærri skjálfti verður.

For­varn­ir á heim­il­inu

  • Festa skápa og hillur við veggi og/eða gólf.

  • Hafa þunga hluti, t.d. styttur, ekki ofar­lega í hillu.

  • Festa sjón­vörp við borð eða veggi.

  • Hafa rúm ekki undir gluggum.

  • Setja ör­ygg­is­filmu á gluggarúður þar sem hætta er á að gler fari yfir fólk.

  • Festa myndir og ljósakrónur í lokaðar lykkjur.

  • Kynna sér hvar vatns­inntak hússins er og hvernig á að skrúfa fyrir.

  • Setja örygg­is­læs­ingar á skápa til að varna því að brot­hættir hlutir detti út úr þeim.

  • Hafa viðlaga­búnað eins og sjúkra­gögn, útvarp með rafhlöðum, vasa­ljós, teppi, vasa­hníf, upplýs­ingar um neyð­ar­núm­erið 112 og auka­lykla að bíl, sumar­bú­stað eða öðrum stað sem fjöl­skyldan hefur aðgang að tiltækan.

  • Kynn sér hvar næsta fjölda­hjálp­ar­stöð er.

Viðbrögð við jarð­skjálfta

  • Þegar jarð­skjálfti verður er mikil­vægt að hver og einn verji sig fyrir slysum. Einkunn­arorð þar eru að krjúpa, skýla og halda. Gott getur verið að fara í horn á herbergi eða undir borð eða annað sem veitir skjól. Ekki er mælt með því að hlaupa út, sérstak­lega ef um einhverja vega­lengd þarf að fara, þar sem erfitt er að fóta sig þegar allt er á hreyf­ingu.

  • Eftir jarð­skjálftann verjið fætur með því að fara í skó.

  • Ef vatns­lagnir hafa gefið sig skrúfið fyrir vatns­inn­takið.

  • Ef gaseldavél er á heim­ilinu skrúfið fyrir gaskútinn þar sem mögu­leiki er á að samskeyti hafi farið í sundur.

  • Kveikið á útvarpi til að athuga hvort upplýs­ingar og tilkynn­ingar komi þar fram.

  • Ef íbúar meta hús óíbúð­ar­hæft skal fara út í róleg­heitum, taka með sér það nauð­syn­leg­asta og fara í næstu fjölda­hjálp­ar­stöð.

  • Ef rafmagn fer af virka ekki þráð­lausir heimasímar, eingöngu fast­línusímar og farsímar. Alltaf er hætta á að símkerfi laskist og að álag á þau verið mjög mikið. Notið því síma eingöngu í neyð fyrst á eftir.

  • Ef slys verður á fólki hringið í 112.

Hvaða trygg­ing­ar taka á jarðskjálft­um?
Bruna­trygg­ing hús­eigna er skyldu­trygg­ing. Allt sem er bruna­tryggt er sjálf­krafa viðlaga­tryggt hjá Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands sem þýðir að það er tryggt fyr­ir tjóni af völd­um eld­gosa, jarð­skjálfta, skriðu­falla, snjóflóða og vatns­flóða. Ekki er skylt sam­kvæmt lög­um að tryggja inn­bú eða annað lausa­fé. Mik­il­vægt er að hver og einn meti sitt inn­bú og lausa­muni og tryggi í sam­ræmi við and­virði þess. Mjög al­gengt er að and­virði inn­bús sé van­metið þegar trygg­ing­ar eru tekn­ar.

Fréttasafn
Deila frétt