Fréttasafn

|

22.06.2020

Vegna jarð­skjálfta á Norð­ur­landi

Jarð­skjálfta­hrina hefur staðið yfir norð­austur af Siglu­firði og ekki hægt að útiloka að enn stærri skjálftar verði næstu daga. Í ljósi þess viljum við koma til þín upplýs­ingum um trygg­ingar og hvað þú getir gert til að auka öryggi þitt við þessar aðstæður.

Nátt­úru­ham­fara­trygging Íslands bætir tjón á öllum bruna­tryggðum fast­eignum sem verða fyrir tjóni vegna jarð­skjálfta. Hún bætir einnig tjón á innbúi ef bruna­trygging er til staðar, eins og í öllum F plús fjöl­skyldu­trygg­ingum.

Stærsta þjón­ustu­skrif­stofan okkar er á netinu og er opin allan sólar­hring­inn. Þar er meðal annars hægt að sjá yfirlit yfir trygg­ing­arnar. Við hvetjum þig til þess að fara vel yfir trygg­ing­arnar þínar og athuga hvort þær endur­spegli raun­veru­legt verð­mæti þess sem þær eiga að tryggja.

Ef einhverjar spurn­ingar vakna, þá erum við til staðar á netspjallinu. Einnig er hægt að senda okkur tölvu­póst á vis@vis.is og hringja til okkar í síma 560-5000.

Til þess að auka öryggið á heim­ilinu er gott að hafa í huga:

  • Að festa skápa og hillur við vegg.

  • Hafa ekki þunga hluti ofar­lega í hillu.

  • Festa sjón­vörp við borð eða veggi.

  • Hafa rúm ekki undir gluggum nema örygg­is­filma sé á rúðu.

  • Festa myndir og ljósakrónur í lokaðar lykkjur.

  • Setja örygg­is­læs­ingar á skápa til að varna því að brot­hættir hlutir detti út úr þeim.

  • Fara vel yfir með fjöl­skyld­unni hvar vatns­inntak hússins er og hvernig á að skrúfa fyrir.

  • Hafa búnað eins og sjúkra­gögn, lang­bylgju útvarp með rafhlöðum, vasa­ljós, teppi, vasa­hníf, upplýs­ingar um Neyð­ar­línuna 112 og auka­lykla að bíl, sumar­bú­stað eða öðrum stað sem fjöl­skyldna hefur aðgang að.

  • Kannaðu hvar næsta fjölda­hjálp­ar­stöð er.

Farðu vel yfir rétt viðbrögð með fjöl­skyld­unni:

  • Gott er að verja sig fyrir slysum með því að krjúpa, skýla og halda í. Gott getur verið að fara í horn á herbergi eða undir borð eða annað sem veitir skjól.

  • Ekki er mælt með því að hlaupa út, sérstak­lega ef um einhverja vega­lengd þarf að fara, þar sem erfitt er að fóta sig þegar allt er á hreyf­ingu.

  • Fara í skó til að verja fætur ef gler­brot eða annað er á gólfum.

  • Skrúfa fyrir vatns­inntak ef farið er að leka.

  • Skrúfa fyrir gaskútinn ef þú ert með gaselda­vél.

  • Kveiktu á útvarpinu til að hlusta eftir upplýs­ingum og tilkynn­ingum.

  • Ef íbúar meta hús óíbúð­ar­hæft skaltu fara út í róleg­heitum, taktu með þér það nauð­syn­leg­asta og farðu í næstu fjölda­hjálp­ar­stöð.

  • Mögu­leiki er á að símkerfi laskast og álag sé mikið. Því er gott að nota síma eingöngu í neyð.

  • Ef slys er á fólki skaltu hringja í 112.

Fréttasafn
Deila frétt