Fréttasafn

|

17.01.2020

Veður­við­var­anir halda áfram

Enn og aftur eru viðvar­anir í veður­kortum. Einar Svein­björnsson hjá Veður­vakt­inni spáir snörpum leys­ingum aðfar­arnótt sunnu­dags. SA-stormi með tals­verðri rign­ingu sunnan- og vest­an­lands snemma morg­uns.

Hann segir óveð­urs­lægðina fara langt fyrir vestan land og skil hennar með rign­ingu fari hratt yfir land­ið.  Hitinn komst í 5 til 6 stig á láglendi um tíma undir hádegi. Því megi búast við tals­verðum vatnsaga í þétt­býli þar sem snjór er fyrir, einkum um Vest­an­vert landið, þar með talið á höfuð­borg­ar­svæð­inu. Norð­an­lands er spáð minni rign­ingu en þar er reyndar víða nokkur snjór í byggð. Til fjalla blotni í snjónum og skamm­vinn hláka valdi því fyrst og fremst leys­ingum á láglendi. Veðrið fari svo aftur hratt kóln­andi og frysti á mánu­dags­nótt­ina. 

Við hvetjum alla til að huga að niður­föllum. Tryggja að vatn eigi greiða leið að þeim og þau virki vel. Eins að moka snjó af svölum þar sem algengt er að vatn leki inn ef það er ekki gert og slík tjón ekki bætt. Eins er gott að moka snjó frá húsveggjum til að vatn liggi síður upp við þá. Eins er mikil­vægt að allir séu meðvit­aðir um að mjög hált geti orðið þar sem klaki er til stað­ar. 

Fréttasafn
Deila frétt