Fréttasafn
|06.08.2020
Vantar eitthvað af listanum í þinn bíl?
Ef eitthvað kemur uppá á ferðum okkar um landið er gott að geta gripið í réttu græjurnar. Vantar eitthvað hjá þér af listanum?

Mikilvægt er að hafa réttu tækin og tólin í bílnum á ferðalaginu um landið. Ef eitthvað kemur uppá er gott að geta gripið í réttu græjurnar. Svo er gott að aðstoða náungann ef við höfum tök á. Ef ekkert gengur, þá er auðvitað alltaf hægt að hringja í ef eitthvað kemur uppá á ferðum okkar um landið.
Eftirfarandi listi er ekki tæmandi en er ágætur til að miða við:
Sjúkragögn.
Viðvörunarþríhyrningur.
Bílrúðulímmiði til að setja yfir litla skemmd eftir grjótkast.
Loftmæli og jafnvel loftdælu.
Dráttarkaðall.
Tjakk, felgulykill og varadekk eða kvoðuviðgerðarsett.
Yfirhöfn.
Svo má auðvitað ekki gleyma að fara með gát og hafa fulla athygli við aksturinn. Ekki gleyma að spenna öryggisbeltin. Góða ferð og góða skemmtun.