Fréttasafn

|

23.10.2020

Uppgjör 3. ársfjórð­ungs 2020

Árangur í fjár­fest­ingum var góður á þriðja ársfjórð­ungi þrátt fyrir áskor­anir á eigna­mörk­uðum vegna heims­far­ald­urs­ins.

Helgi Bjarnason er forstjóri VÍS.

Helstu niður­stöður þriðja ársfjórð­ungs 2020.
  • Hagn­aður var 1.032 m.kr. saman­borið við 394 m.kr. tap á 3F 2019

  • Iðgjöld voru 5.735 m.kr. saman­borið við 6.085 m.kr. 3F 2019

  • Fjár­fest­inga­tekjur voru 1.110 m.kr.  en voru neikvæðar um 237 m.kr. á sama tíma­bili í fyrra

  • Arðsemi eigin fjár var jákvæð um 7,0% en var  nei­kvæð um 2,7% á sama tíma­bili 2019

  • Samsett hlut­fall var 94,5% saman­borið við 99,7% á sama tíma­bili 2019

Helgi Bjarna­son, forstjóri VÍS:

„Árangur í fjár­fest­ingum var  góður á þriðja ársfjórð­ungi þrátt fyrir áskor­anir á eigna­mörk­uðum vegna heims­far­ald­urs­ins. Fjár­fest­inga­tekjur  námu 1.110 m.kr. og nafnávöxtun var 2,9%. Afkomu af fjár­fest­ingum má einkum rekja til ávöxt­unar af skráðum hluta­bréfum en hækkun skráðra hluta­bréfa nam 7,2%. Einnig var afkoma af erlendum skulda­bréfa­sjóðum góð í ársfjórð­ungnum.

Viðsnún­ingur var í vátrygg­ing­a­rekstri milli fjórð­unga. Afkoma vátrygg­ing­a­rekstr­arins í þriðja ársfjórð­ungi var jákvæð um  358 millj­ónir króna ─ saman­borið við tap upp á 158 millj­ónir króna í öðrum ársfjórð­ungi 2020. Iðgjöld tíma­bilsins voru 5.735 millj­ónir króna saman­borið við 6.085 millj­ónir króna á sama tíma­bili í fyrra. Helstu ástæður fyrir lækkun iðgjalda er samdráttur í ferða­þjón­ustu og  minni umsvif í erlendri endur­trygg­inga­starf­semi. Samsett hlut­fall fjórð­ungsins var 94,5%.

Staf­rænir sigrar

Við unnum ýmsa staf­ræna sigra á ársfjórð­ungnum. Við settum nýja heima­síðu í loftið en þar var allt kapp lagt á að útskýra trygg­ingar á manna­máli og veita góð ráð um forvarnir ─ sem stuðla að því að viðskipta­vinir okkar lendi sjaldnar í tjónum.

Þrátt fyrir að lítið sé um ferðalög í heims­far­aldr­inum, þá höfum haldið áfram að þróa staf­rænar lausnir í ferða­tjónum. Afgreiðsla ferða­tjóna er nú orðin sjálf­virk sem þýðir einfald­lega betri og hraðari þjón­usta. Ef  viðskipta­vinir okkar verða fyrir skakka­föllum á ferða­lögum erlendis, þá býður lausnin upp á sjálf­virka úrlausn mála. Við erum því tilbúin að veita enn betri þjón­ustu um leið og landinn fer að ferðast á ný.

Við lokuðum þjón­ustu­skrif­stof­unum aftur í þessari bylgju heims­far­ald­ursins og veittum þjón­ustu með öðrum leiðum. Þess má geta að stærsta þjón­ustu­skrif­stofan okkar er á netinu og er opin allan sólar­hring­inn. Hlut­fall rafrænna tjónstil­kynn­inga hefur aldrei verið hærra eða tæplega 60%. Rúmlega 90% af tilkynn­ingum um tjón á innbúi eru nú tilkynnt rafrænt ─ og er rúmlega helm­ingur af þeim í sjálf­virkri afgreiðslu. Við erum stolt af því, enda erum við á staf­rænni vegferð.

Jákvætt viðhorf gagn­vart Ökuvísi

Samvinnan við viðskipta­vini okkar um þróun á Ökuvísi hefur verið mjög lærdóms­rík. Þetta er ný nálgun í trygg­ingum hér á landi og er mikil­vægt að rödd viðskipta­vina heyrist frá byrjun. Við höfum því fengið viðskipta­vini að borðinu til þess að hjálpa okkur að þróa og móta Ökuvísi. Þessi endur­gjöf skiptir miklu máli, því við ætlum okkur að bjóða upp á vöru og þjón­ustu sem mætir raun­veru­legri þörf viðskipta­vina okkar. Verk­efninu miðar vel áfram en einn af þeim þáttum sem við hugum sérstak­lega vel að ─ er að við séum ávallt að vinna í samræmi við persónu­vernd­ar­lög. Gert er ráð fyrir fyrstu útgáfu nýs apps fyrir lok þessa árs. Þess má einnig geta að Íslend­ingar eru almennt jákvæðir gagn­vart Ökuvísi, samkvæmt nýrri könnun. Þessi niður­staða gefur okkur byr undir báða vængi ─ og hvetur okkur áfram.

Við lítum svo á að þessir staf­rænu sigrar séu mikil­vægar vörður í að verða staf­rænt þjón­ustu­fyr­ir­tæki. Við erum með skýra sýn og skýr mark­mið. Þrátt fyrir óvissu í samfé­laginu vegna heims­far­ald­ursins höldum við ótrauð áfram ─ og lítum bjartsýn til fram­tíð­ar.“

Horfur

Uppfærð afkomuspá gerir ráð fyrir því að samsett hlut­fall fyrir árið 2020 verði 105,5%, ávöxtun fjár­eigna verði 8,2% og hagn­aður fyrir skatta 390 millj­ónir. Afkomuspá til næstu 12 mánaða gerir ráð fyrir 96,8% samsettu hlut­falli, 5,6% ávöxtun fjár­eigna og hagnaði fyrir skatta upp á rúmlega 2,3 millj­arða.

Fréttasafn
Deila frétt