Fréttasafn
|06.05.2020
Tryggjum öryggi barnanna
Trampólín eru víða mætt í garða landsins. Enda eru hopp á þeim frábær hreyfing og bjóða uppá skemmtilega leiki. Mikilvægt er að tryggja öryggi barna til þess að draga úr líkum á slysum.

Trampólín eru víða mætt í garða landsins. Enda eru hopp á þeim frábær hreyfing og bjóða uppá skemmtilega leiki. Mikilvægt er að tryggja öryggi barna til þess að draga úr líkum á slysum. Þess má geta að árið 2017, leituðu 296 á slysadeild Landsspítalans vegna trampólínslysa. Pössum uppá börnin ─ og gerum okkar besta til þess að koma í veg fyrir slysin.
Við hvetjum alla sem eru með trampólín að huga að eftirfarandi atriðum.
Fara eftir leiðbeiningum við uppsetningu.
Tryggja að undirstöður og rammi trampólínsins sé í lagi.
Festa trampólín tryggilega við jörðu.
Hafa trampólínið á mjúku undirlagi s.s. grasi en ekki á stétt eða við girðingar og steina.
Virða þá þyngd sem gefin er upp.
Nota öryggisnet.
Hafa inngangsopið lokað þegar hoppað er.
Nota hlíf yfir gormana.
Passa að gormar séu heilir og jafnstífir.
Kenna réttar leikreglur, þ.e. að einn hoppi í einu.