Fréttasafn

|

12.08.2020

Tökum okkur pláss í umferð­inni

Þessi átta atriði geta komið í veg fyrir að þú lendir aftan á einhverjum á aðrein.

Aftaná­keyrslur eru næst algeng­ustu ökutækja­tjón VÍS. Lang­stærsta orsökin er sú að of lítið bil er á milli bíla, að athyglin sé ekki á réttum stað og síðast en ekki síst, of mikill hraði. Hluti þessara slysa verða þegar farið er inn á stofn­brautir frá aðreinum. Til að minnka líkur á slíkum slysum og tjónum er klókt að temja sér eftir­far­andi:

  1. Hafa alla athygli við akst­ur­inn.

  2. Nota stefnu­ljós.

  3. Huga að hraða.

  4. Nýta lengd aðreinar.

  5. Ef bíll er á undan, að tryggja nægi­legt bil.

  6. Ekki fylgjast með umferð á stofn­braut ef bíll er á undan.  

  7. Fylgjast með umferð á stofn­braut í spegli og muna eftir ,,blinda svæð­inu“.

  8. Fara inn á stofn­brautina þegar þú ert viss um að nægt pláss sé til staðar.

Þeir sem eru á stofn­braut­unum ættu að leitast við að liðka fyrir umferð af aðreinum með því nýta hina svokölluðu „tann­hjóla­að­ferð“ eða skipta um akrein þar sem þess er kostur. Rétt stilltur höfuð­púði getur síðan komið í veg fyrir háls- og baká­verka ef aftaná­keyrsla verður en þá nemur hvirfill höfuðs við efri brún púðans og bil á milli púða og höfuðs er ekki meira en tveir til þrír senti­metr­ar. 

Fréttasafn
Deila frétt