Fréttasafn

|

23.01.2020

Þungur mánuður

Færðin hefur verið erfið á nýju ári.  Vindur, hálka og snjór hefur heldur betur sett strik í reikn­ing­inn. Því miður hafa mörg alvarleg umferð­ar­slys verið á nýju ári og í nýlegri ­sam­an­tekt á visir.is voru tilgreind 20 slys sem hafa átt sér stað á nýju ári.

Tilkynn­ingar um slys og tjón berast oft ekki til trygg­ing­ar­fé­laga fyrr en nokkrum dögum eftir að þau áttu sér stað. Tugi tilkynn­inga um tjón á bílum berast VÍS á hverjum einasta degi og voru þau 80 þann dag þegar mest lét. Oft eru þetta tjón sem auðveld­lega hefði verið hægt að koma í veg fyrir með aðgát og varúð. Mikil­vægt er að átta sig á stöð­unni og taka enga áhættu.

Gerðu það sem þú getur til þess að koma í veg fyrir slys. Hugaðu að færð og veðri, tryggðu að dekkja­bún­aður bílsins sé góður, stilltu hraðann miðað við aðstæður, notaðu örygg­is­búnað og gættu að bilsins milli þín og næsta bíls.

Verum vakandi og pössum okkur í umferð­inni.

Fréttasafn
Deila frétt