Fréttasafn

|

01.04.2020

Styrkjum góð málefni

Þegar við­skipta­vinir okkar kaupa líf- og sjúk­dóma­trygg­ingar á netinu hafa þeir val um að styrkja góðgerð­ar­fé­lög. Valið stendur milli þriggja góðgerð­ar­fé­laga. Fyrir hverja milljón, sem viðskipta­vinur okkar velur í trygg­ing­ar­fjár­hæð, fara 1.000 krónur til góðgerð­ar­mála. Þeir viðskipta­vinir okkar sem kaupa líf- og sjúk­dóma­trygg­ingu á netinu hafa því tæki­færi til þess að láta gott af sér leiða.

Félögin sem hægt er að styrkja eru:

  • Hjarta­heill - lands­samtök hjarta­sjúk­linga. Hlut­verk samtak­anna er að stuðla að betri heilsu og bættum lífs­gæðum í íslensku samfé­lagi. Félagið leggur áherslu á forvarnir, fræðslu og meðferð hjarta­sjúk­dóma.

  • Kraftur - stuðn­ings­félag ungs fólks með krabba­mein og aðstand­endur þeirra.  Markmið félagsins er að styðja við ungt fólk sem greinst hefur með krabba­mein og aðstand­endur þeirra.

  • MS félag Íslands - Markmið félagsins er að veita þeim,  sem greinst hafa með MS sjúk­dóminn og aðstand­endum þeirra, stuðn­ing. Mark­miðið er einnig að stuðla að öflugu félags- og fræðslu­starfi.

Þau góðgerð­ar­félög sem valin voru sinna öflugum forvörnum og hlúa að fólki er greinst hafa með alvar­lega sjúk­dóma.

Fréttasafn
Deila frétt