Fréttasafn

|

11.03.2020

Sóttkví getur verið góð skemmtun

Það er sameig­in­legt verk­efni okkar allra að gera allt sem við getum til að koma í veg fyrir smit. Sóttkví er hluti af því. Í sóttkví fara þeir einstak­lingar sem hafa mögu­lega smitast en eru ekki ennþá veikir þ.e. eru einkenna­lausir. Ef þú þarft að fara í sóttkví láttu þér ekki leið­ast, njóttu frekar.

Af hverju sótt­kví?

Það er sameig­in­legt verk­efni okkar allra að gera allt sem við getum til að koma í veg fyrir smit. Sóttkví er hluti af því. Í sóttkví fara þeir einstak­lingar sem hafa mögu­lega smitast en eru ekki ennþá veikir þ.e. eru einkenna­lausir. Ekki er víst að allir á heim­ilinu þurfi að fara í sótt­kví. Ef svo er, þá er mælst til þess að þeir sem eru útsettir fyrir smiti dvelji ekki á sama stað og þeir sem eru í sótt­kví. Ein lausn á því er nýta sér sumar­bú­stað. Ef ekki er hægt að skipta íbúum heim­il­is­ins, þá er mjög mikil­vægt að takmarka snert­ingu, huga mjög vel að hrein­læti og hafa sér svefn­rými fyrir þann sem er í sótt­kví. Ef þú þarft að fara í sóttkví þá er mikil­vægt að taka hana alvar­lega. Við hvetjum þig samt til að líta ekki á sóttkví sem fang­elsi heldur sem tíma fyrir sjálfan þig. Tíma til að gera þá hluti sem þig hefur alltaf langað til að gera en ekki gefið þér tíma í.

Höldum rútínu

Fjórtán dagar getur hljómað sem heil eilífð þegar þarf að hanga heima. En það þarf alls ekki að vera svo. Haltu rútín­unni. Ekki rugla í svefn­inum. Farðu að sofa og vaknaðu á svip­uðum tíma alla dagana. Kannski er þetta tíminn sem gefst til að lesa bókina Why We Sleep? Bókina sem hefur opnað augu almenn­ings fyrir mikil­vægi svefns á heilsu, vellíðan og árangur. Er málið að gera áætlun fyrir hvern dag? Hvað á að gera og jafnvel setja sér mark­mið? Þannig að þessir 14 daga líði ekki án þessi að eitt­hvað sitji eftir.

Vertu Wilson

Þrátt fyrir að vera í sótt­kví, þá þurfum við ekki að hætta öllum samskiptum. Þú verður að hafa í huga að halda hæfi­legri fjar­lægð frá næsta manni, um 2-3 metra. Við munum mörg eftir Wilson í amer­ísku sjón­varps­þátt­unum Home Improvement. Wilson og Tim Taylor voru aldrei í mikilli nánd við hvorn annan þar sem Wilson stóð í sínum garði og á bakvið grind­verk. En það kom ekki í veg fyrir náin samskipti.

Pantaðu mat heim

Að vera í sóttkví þýðir að þú mátt ekki fara út að versla. Ekki einu sinni um miðja nótt. En sem betur fer hefur orðið mikil þróun í heimsend­ingum á mat. Pítsur hafa auðvitað verið sendar heim til okkar í áratugi en á síðustu miss­erum hefur verið lítið mál að fá fjöl­breyttan mat sendan heim frá matvöru­búðum og veit­inga­stöðum. Við bíðum þó enn eftir heimsendum bragð­aref.

Enga feimni

Að vera í sóttkví er ekkert feimn­is­mál. Með því uppfyllum við skyldu okkar gagn­vart samfé­laginu sem kallar á varkárni. Þótt þú sért heilsu­hraustur þýðir ekki að fólkið í kringum þig sé það. Segðu vinum og vanda­mönnum frá stöð­unni, þau gætu boðist til þess að aðstoða þig við ýmis konar innkaup.

Vinnan

Margir geta unnið að heiman. Þá er tilvalið að koma sér upp góðri vinnu­að­stöðu en ekki kúldrast uppí sófa með tölvuna og auka þar með líkur á stoð­kerf­is­verkjum vegna rangra vinnu­stell­inga.

Bíltúr

Þú mátt ekki vera í návist við aðra þegar þú ert í sótt­kví. Nýttu tæki­færið og farðu á rúntinn á fallega staði í nálægt höfuð­borg­ar­svæð­inu. Mundu, að þú mátt ekki taka upp farþega eða fara í bíla­l­úgu. Þá er tilvalið að skoða íslenska náttúru eins og Þing­velli, Reykja­nesið eða Hval­fjörð­inn.

Líkams­rækt

Gymmið er ekki valkostur í sótt­kví. Búðu til æfinga­pró­gram heima fyrir sem þú ferð eftir daglega. Ekki gleyma leg day!

Hvað ef ég bý í fjöl­býli?

Ef þú býrð í fjöl­býli þarftu að taka tillit til nágranna þinna. Ef stiga­gang­urinn er með Face­book hóp gæti verið sniðugt að láta vita að þú sért í sótt­kví. Að þú munir kalla fram á gang ef þú vilt fara upp eða niður stigann til að komast út eða bara fara með ruslið. Vertu í hönskum þegar þú þarft að snerta hurð­arhún eða hand­rið. Ef þú ert við það að mæta einhverjum í stiga­gang­inum, þarftu að láta viðkom­andi vita að þú sért í sótt­kví. Þú skalt biðja viðkom­andi um að fara til baka til að hleypa þér í gegn.

Göngutúr

Þér er alveg óhætt að fara í göngu­túra, það er mikil­vægt að fá frískt loft og hreyfa sig reglu­lega. Haltu bara tveggja metra fjar­lægð frá öðrum. Óþarfi samt að vera með prik til að halda fólki í fjar­lægð.

Eru verk­efni heima sem hafa beðið lengi?
  • Eru fata­skáp­arnir fullir af fötum sem eru aldrei notuð og geta nýst einhverjum öðrum?

  • Er krydd eða önnur matvara með síðasta sölu­degi frá tíunda áratugnum?

  • Er rétti tíminn til að henda máln­ingu á einhverja veggi? Þú getur alltaf beðið einhvern að kaupa það sem þarf.

  • Það er merki­legt hvað ratar í geymsl­una. Einn daginn er hún orðin yfir­full og enginn veit almenni­lega hvað hún geymir.

  • Er viðhald á heim­ilinu sem hægt er að sinna? Hvað með hurðina sem er alltaf skökk? En vask­urinn sem lekur?

  • Hvað með garð­inn? Er eitt­hvað þar sem þú getur gert eða er snjór yfir öllu?

  • Eru ljós­mynd­irnar í einum graut? Í mesta lagi flokk­aðar eftir ártölum. Eru allar mynd­irnar þarna, sama hvort þær séu góðar eða vondar?

Tíu góðar myndir til að horfa á ef þú ert í sóttkví

Að vera í sóttkví getur verið góð skemmtun. Þessar kvik­myndir geta stytt þér stund­irnar milli þess sem þú þrífur herbergið í þriðja skiptið.

  1. Groundhog day. Bill Murrey fer á kostum í hlut­verki veður­frétta­mannsins Phil Connor sem upplifir sama daginn, aftur og aftur. 

  2. Home Alone. Hinn ungi Kevin McCallister þarf að hafa ofan af fyrir sér aleinn heima, fyrir tíma iPad, á meðan fjöl­skyldan fer í frí til Parísar.

  3. Panic Room. Jodie Foster dvelur í öryggis­klefa. Óþarfi að panikka samt.

  4. The Lord of the Ring mynd­irnar. Ekki nema 11 ½ tíma . Þú hefur nægan tíma.

  5. Con Air. Myndin er æsispenn­andi og skartar engum öðrum en Nicolas Cage sem þarf að kljást við Cyrus the Virus í fanga­flugi.

  6. Outbreak. Kvik­mynd með Dustin Hoffman í aðal­hlut­verki. Pínu drama­tísk.

  7. Groundhog Day. Bill Murrey fer á kostum í hlut­verki veður­frétta­mannsins Phil Connor sem upplifir sama daginn aftur og aftur. ­Mælum með daglegu áhorfi.

  8. Her. Joaquin Phoenix lærir að elska stýri­kerfi og hafnar mann­legum samskiptum.

  9. Read Window. James Stewart hangir inni og fylgist með fólkinu á móti. Ekki láta grípa þig glóð­volgan við gónið.

  10. Bubble Boy. Svört kómedía með Jake Gyllen­haal í aðal­hlut­verki sem þarf að búa í sótt­hreinsuðu herbergi og ferðast um í kúlu.

Lesa góða bók

Margir eiga bækur sem hafa setið á hakanum, sem planið er að lesa „seinna“. Í sóttkví er gott tæki­færi til að dusta rykið af þessum bókum því að „seinna“ er runnið upp. Lestr­inum fylgja tveir kostir. Í fyrsta lagi, er lestur góð afþreying en jafn­framt fylgir því oft áhuga­verður og góður lærdómur. Ef þú ert ekki með bækur heima fyrir, þá er hægt að hlusta á hljóð­bækur.

Tölvu­leikir

Þeir sem spila tölvu­leiki, eins og t.d. Playstation, vita hvernig tíminn getur flogið frá manni þegar maður er að spila. Ef þú hefur aldrei tíma til að spila, þá er tíminn réttur núna. Og fyrir þá sem hafa ekki spilað áður, hvernig væri að prófa?

Spil og leikir

Flestir eiga allskyns spil. Hvort sem það eru venju­legu gömlu spilin, borð­spil, teninga­spil, púsl eða annað. Finndu þessi spil og gefðu þér smá tíma í að kynnast þeim aftur. Og ef allt annað þrýtur, þá er alltaf hægt að byggja spilaturn.

Föndur

Á flestum heim­ilum eru til verk­færi til að föndra og á Youtube er fjöldinn allur af hugmyndum. Leitaðu að fönd­ur­hug­myndum (e. craft­ing) á Youtube og þú færð fjöldann allan af hugmyndum að föndri sem þú getur leikið þér með.

Okkar skilaboð eru ef við þurfum að vera í sótt­kví, virðum hana og leit­umst við að njóta. 

Fréttasafn
Deila frétt