Fréttasafn

|

13.02.2020

Snældu­vit­laust veður í vændum

,,Spáin fyrir morg­undaginn er mjög slæm" segir Einar Svein­björns­son, veður­fræð­ingur hjá Veður­vakt­inni. Einstak­lingum er bent á neyð­ar­núm­erið 112 ef aðstoð vantar vegna foks til að hægt sé að kalla til viðbragðs­að­ila.

,,Spáin fyrir morg­undaginn er mjög slæm" segir Einar Svein­björns­son, veður­fræð­ingur hjá Veður­vakt­inni. Hann segir að við eigum von á mjög djúpri lægð og miklu hvassviðri. Meðal­vindi allt að 33 m/s og stað­bundnum hviðum að 50 m/sek. Sunn­an­lands hvessir mjög um miðja nótt og nær hámarki milli kl. 06 og 12. Það er  ljóst að þetta verður snældu­vit­laust veður. Óhætt er að vara fólk við að vera á ferð­inni, sérstak­lega á Suður­landi, Suður­nesjum og í efri byggðum höfuð­borg­ar­svæð­isins sem og í Borg­ar­firði. Einnig á Norð­ur­landi, sérstak­lega í Húna­þingi og í Skaga­firði. Á Norð­ur­landi og á Vest­fjörðum verður ekki jafn hvasst og annars staðar á landinu en á móti kemur hríð­ar­veður. Ófærð er líkleg, einkum norðan- og austan til og sunn­an­lands. Vest­an­lands verður skeinu­hætt hviðu­veður.

Veðrið á morgun mun því hafa umtals­verð áhrif á daglegt líf okkar. Því versta veðrið verður á vinnu- og skóla­tíma. Búast má við að foktjón geti orðið vegna veðursins og því mikil­vægt að allir geri ráðstaf­anir til minnka líkur á þeim.  

Hafðu í huga að:

Í dag:

  • Færa lausa muni inn, ef hægt er.

  • Festa munina niður, ef ekki er hægt að setja þá inn.

  • Loka gluggum og hurðum vel, svo þeir fjúki ekki upp.

Á morgun:

  • Fylgstu vel með

  • Passaðu upp á útidyra­hurðir þegar þær eru opnaðar, sér í lagi upp á klemmu­slys.

  • Slepptu því að fara lengri ferðir á meðan veður gengur yfir.

  • Ef þú ætlar ætlar að keyra innan­bæjar, gættu þess að leggja bílnum upp í vind­inn.

  • Hafðu í huga að miklar hviður geta orðið við bygg­ingar.

  • Passaðu upp á bílhurðir þegar þær eru opnaðar.

  • Pössum börnin, best er að leiða þau.

Fréttasafn
Deila frétt