Fréttasafn

|

14.07.2020

Skopp­andi um fjöll og firn­indi

13 mikilvæg atriði fyrir fjall­göng­una. Veist þú hver þau eru?

Það eru án efa ófáir einstak­lingar sem eru búnir eða eiga eftir að fara um fjöll og firn­indi í sumar. Það er sama hvort er hlaup­andi eða gang­andi þá hafa vinsældir ferða­mátans sjaldan verið meiri. Fréttir af slysum á fólki á fjöllum hafa sem betur fer ekki verið margar undan­farið og viljum við að halda því þannig áfram. Við hvetjum þig til að gefa þér tíma til að kynna þér eftir­far­andi 13 góð ráð fyrir göngu­ferð­ina.

  • Kynna sér stað­hætti og ræða við stað­kunn­uga.

  • Skoða veður.

  • Láta vita af ferðum sínum.

  • Muna að fyrir hverja 100 metra hækkun má gera ráð fyrir að hiti lækki um 0,6°C.

  • Muna að vind­kæling getur verið tölu­verð og eykst í bleytu.

  • Vera í góðum göngu­skóm.

  • Vera í nokkrum lögum af fötum og með góða skel.

  • Hafa göngustafi, orku­ríkt nesti og vökva meðferðis.

  • Hafa góðan ferða­fé­laga sér við hlið.

  • Hafa símann full­hlaðinn og auka rafhlöðu.

  • Nýta 112 appið og enn betra er að bæta gps og átta­vita við.

  • Muna að stik­aðar göngu­leiðir eru öruggara val en óstik­aðar.

  • Ef þoka skellur á og þú sérð ekki handa þinna skil láttu vita af þér, haltu kyrru fyrir, reyndu að halda á þér hita og alls ekki sofna.

Fréttasafn
Deila frétt