Fréttasafn

|

12.06.2020

Rafmagns­hlaupa­hjól - skemmti­legur ferða­máti

Rafmagns­hlaupa­hjólin eru að falla í kramið hjá land­anum. Þau eru víða uppseld og margir á biðlista eftir nýrri send­ingu. Líkt og með margt annað geta slys orðið við notkun hjól­anna, sér í lagi ef ekki er hugað að örygg­inu.

Förum eftir leið­bein­ingum

Samkvæmt umferð­ar­lögum er ekkert aldurstak­mark á rafmagns­hlaupa­hjólum. Þó er mjög mikil­vægt að fara eftir viðmiðum og leið­bein­ingum frá fram­leið­anda. Þar getur aldurstak­mark verið mismun­andi eftir hámarks­hraða hjóls, t.d. átta ár ef hámarks­hraði er 12 km/klst., 14, 16 eða 18  ára ef hámarks­hraði  25 km/klst. eða aldurstak­mark út frá hæð notanda. Ekki er víst að allir foreldrar átti sig á þessum viðmiðum þar sem sjá má krakkar allt niður í átta ára, á hjólum með hámarks­hraða 25 km/klst.

Hámarks­hraði hlaupa­hjóla

Hámarks­hraði rafmagns­hlaupa­hjóla er mismun­andi eftir tegundum og hámarks­hraði getur verið frá sex km/klst. Hér á landi er leyfi­legt að vera á hjóli sem kemst allt að 25 km/klst. en ef hjólið fer hraðar verður það að vera skrán­ing­ar­skylt, á númeri, með stefnu­ljós og þess háttar. Mikil­vægt er að foreldrar séu meðvit­aðir um að til eru öpp þar sem hægt er að hækka hámarks­hraða umfram 25 km/klst. Aldrei má það gleymast að eftir því sem hraðar er farið, þeim mun meiri hætta er á að alvar­legum áverkum ef slys verður. Trygg­ingar bæta ekki á slys þar sem hraði var meiri en 25 km/klst. og ef hjól fer yfir þann hraða, þarf að skrá hjólið á númer.

Mikil­vægt að hafa fulla athygli

Á rafmagns­hlaupa­hjóli á að vera á stígum og gang­stéttum en ekki götunni. Þar ber að víkja fyrir gang­andi, halda sig hægra megin og láta vita af sér með léttri hring­ingu á bjöllu. Svo þarf að gera ráð fyrir því að aðrir í umhverfinu sjái mann ekki og geri ekki endi­lega það sem maður á von á. Í þeim aðstæðum er mikil­vægt að hafa fulla athygli og vera á hæfi­legum hraða.

Notum hjálminn

Allir ættu að hafa hjálm á hjól­inu. Hjálmur er samt ekki bara hjálmur því hann þarf að vera í lagi og rétt stilltur. Annars veitir hann falska vörn. Til þess að auka enn frekar öryggið á hlaupa­hjól­inu, þá eru hlífar á hné og olnboga málið.

Stýrið rétt stillt

Fram­leið­endur eru með leið­bein­ingar meðal annars um umgengni, still­ingar, hleðslu, örygg­is­búnað, notkun og viðhald. Mikil­vægt er að fara yfir leið­bein­ing­arnar áður en byrjað er að nota hjólið til þess að auka öryggi sitt og líftíma hjóls. Til að mynda má sjá mörg börn með stýri hlaupa­hjólsins alltof hátt stillt sem dregur úr stjórn þeirra á hjólinu og eykur líkur á að stýrið fari í andlit, háls og brjóst­kassa ef þau detta.

Er hjólið tryggt?

Þjófn­aður og slys á rafmagns­hlaupa­hjóli er tryggt í gegnum F plús 2, 3 og 4 svo fremur sem hjólið fari ekki hraðar en 25 km/klst. Innbúskaskó tekur síðan á tjónum sem verða á hjólinu sjálfu.

Fréttasafn
Deila frétt