Fréttasafn

|

18.12.2020

Pössum upp á jóla­kúluna okkar

Þessi jól verða svolítið frábrugðin því sem við eigum að venjast því COVID-19 heldur áfram að hafa áhrif á tilver­una.

Við erum hvött til að búa til okkar Jóla­kúlu og halda okkur við hana. Þar mega bara tíu koma saman - en börn fædd 2005 og yngri og þeir sem hafa fengið COVID-19 teljast ekki með í þeirri tölu. Nánari upplýs­ingar má nálgast á á covid.is

Þó sótt­varn­a­reglur breyti mörgu, pössum okkur samt á því að tapa ekki gleð­inni. Hugsum vel um hvort annað og verum dugleg að hreyfa okkur utan­dyra. Virðum sótt­varn­a­reglur og tryggjum öryggið á heim­ilinu nú þegar brunar á heim­ilum eru tíðastir.

Með ósk um gleði og öryggi um jólin.

Fréttasafn
Deila frétt