Fréttasafn
|20.08.2020
Örugg á leiðinni í skólann
Höfum á tæru hvernig öryggi barna okkar er best tryggt á leið sinni til og frá skóla. Förum líka yfir það með þeim.

Haustin, þegar skólar hefjast á ný, hafa alltaf einhvern sjarma yfir sér. Krakkar skottast af stað með skólatösku, mörg hver full eftirvæntingar að hitta félagana eða taka sín fyrstu skref í nýjum skóla.
Umferðin er hluti af skólagöngu hvers og eins ─ sama hver ferðamátinn er. Slysin verða ekki aftur tekin en þau má fyrirbyggja. Því hvetjum við foreldra til að ræða umferðina við börnin og vera sjálf til fyrirmyndar.
Gangandi
Nota öruggustu leiðina sem er ekki endilega styst.
Virða alltaf umferðareglur en ekki bara þegar hentar.
Fara yfir götu á öruggan hátt.
Fara meðfram bílastæðum en ekki þvert yfir þau.
Nota endurskin á tösku og yfirhafnir.
Vera meðvituð um truflunina sem heyrnartól og sími hafa.
Hjólandi, vespur, rafmagnshlaupahjól o.fl.
Stilla hjálminn rétt.
Hafa fulla athygli við akstur.
Víkja fyrir gangandi.
Fara eftir umferðarreglum.
Tryggja sýnileika.
Tryggja að rafknúið farartæki fari ekki hraðar en hæfir aldri barns og aldrei meira en 25 km/klst.
Ekki fjölmenna á farartækinu.
Í bíl
Börn undir 12 ára aldri eru best varin í aftursæti.
Börn lægri en 150 cm mega ekki sitja í framsæti með virkan öryggispúða fyrir framan sig.
Börn eiga að nota viðeigandi öryggisbúnað ásamt bílbelti þar til þau hafa náð 36 kg þyngd eða að lágmarki 135 cm hæð eða eru orðin 10 til 12 ára.
Allir í bílnum eiga að vera í bílbelti.
Hafa fulla athygli við aksturinn og gefa sér rúman tíma til að fara á milli staða.
Virða hámarkshraða.
Stoppa fyrir þeim sem ætla yfir gangbraut.
Gera ráð fyrir óvæntum ákvörðunum barna.
Ef skutlað er í skólann, hleypa barninu út á þar til gerðu stæði ef það er til staðar, annars gangstéttarmegin.