Fréttasafn

|

08.04.2020

Njótum pásk­anna heima við

Á þessum skrítnu tímum okkar er mikil­vægt að við gleymum ekki gleð­inni. Einnig er mikil­vægt að halda áfram að fara eftir þeim fyrir­mælum sem gefin eru út á hverjum tíma.

Margir frídagar eru framundan og því freist­andi að nýta þá til þess til að skipta um umhverfi. Hins vegar erum við öll beðin um að vera heima að minnka álagið á heil­brigðis­kerfið. Ef við neyð­umst til að vera á ferð­inni, þá skulum við hafa fyrir­hyggjuna að leið­ar­ljósi. Skoðum færð og veður og tökum enga óþarfa áhættu. Drögum úr hraða, ökum miðað við aðstæður og sleppum framúrakstri. Gerum allt sem við getum til að koma í veg fyrir slys. Spáum líka í litlu hlutina eins og skófatnað í göngu­túrnum. Ekki viljum við detta í hálku um pásk­ana.

Njótum pásk­anna, gerum gott úr aðstæðum og í guðanna bænum, hlýðum Víði.

Gleði­lega páska.

Fréttasafn
Deila frétt