Fréttasafn

|

20.03.2020

Mikil hláka framundan

Mikil­vægt er að tryggja að vatn hafi greiða leið þegar snjórinn fer að bráðna á sunnu­dag­inn. „Á morgun, laug­ar­dag, á að snjóa vest­an­lands með hægum vindi“ segir Einar Svein­björnsson hjá Veður­vakt­inni. Um miðjan dag á sunnudag nálgast svo önnur lægð og fylgir henni hláka.

Nýfallni snjórinn á klak­anum bráðnar fljótt og áköf rigning um tíma mun valda tals­verðum vatna­vexti, sérstak­lega suðvestan- og vest­an­lands „ segir hann jafn­framt Við mælum því með að huga að niður­föllum, ekki síst á svölum og í kjöll­urum. Mikil­vægt er að moka snjó af svölum og frá húsveggjum, þar sem hægt er.

Mikill snjór, svo sem fyrir vestan og norðan, sýgur í sig vatn og þyngist því tölu­vert. Þetta gæti valdið vanda á húsþökum og þakkantar geta gefið sig. Bílar geta skemmst ef hengjur falla á þá og hætta getur skapast ef snjór fellur á einstak­linga. Vekja ætti athygli barna á hætt­unni, að þau séu ekki að leik undir snjó­hengj­unum. Gott væri að losa um snjó­hengjur án þess þó að setja sig í hættu.

Fréttasafn
Deila frétt