Fréttasafn

|

02.12.2020

Mesta kuldakast í sjö ár!

Næstu daga stefn­ir í eitt mesta kuldakast í sjö ár, sér í lagi á suðvest­ur­horn­inu. Það sem er frábrugðið kulda­köstum undan­farna vetur er að nú fylgir nokkur vindur.

Vind­kæling getur því verið umtals­verð í híbýlum, ekki síst sumar­húsum. Í eftir­far­andi töflu má sjá hvað vindur hefur mikið að segja hvað vind­kæl­ingu varðar.

Reynsla okkar sýnir að við svo mikið frost geta orðið alvarleg vatns­tjón í sumar­húsum. Það stafar m.a. af því að oft uppgötvast skaðinn ekki fyrr en einhverjum dögum eða vikum eftir að leki hófst. Dæmi eru um altjón vegna þessa. Við hvetjum því alla, sem eru með sumar­húsin sín kynnt, að huga að þeim.

Hvað þarf að athuga og gera?

  • Hvort þokka­legur hiti sé í húsinu.

  • Hvort nægt rennsli sé á vatni.

  • Hvort þrýst­ingur sé eðli­legur á mæli lagna­grindar.

  • Skilja vaska­skápa eftir opna ef þeir eru á útvegg.

  • Skrúfa fyrir neyslu­vatn og tæma lagnir þegar farið er úr sumar­hús­inu.

  • Hafa öryggis­kerfi sem lætur vita ef breyting verður á hita og raka innan­dyra.

Ef eitt­hvað er ekki í lagi?

  • Komast að rót vandans þ.e. finna út hvar er frosið.

  • Hita upp svæðið sem er frosið.

  • Ef kalda vatnið er frosið getur hjálpað að láta heita vatnið renna í einhvern tíma.

  • Ef ekkert gengur að koma vatni aftur á ─ verður að skrúfa fyrir neyslu­vatnið, áður en húsið er yfir­gefið.

Nánari upplýs­ingar um öryggi í sumar­húsum er að finna hjá okkur á vis.is.

Fréttasafn
Deila frétt