Fréttasafn

|

16.09.2020

Línurnar hafa mikið að segja

Það kemur ökumanni sem ætlar að beygja út af vegi um leið og einhver ætlar að taka fram úr honum oft á óvart að hann er ekki endi­lega í fullum rétti.

Umferð­ar­slys þar sem ökumaður beygir til vinstri út af vegi um leið og einhver ætlar að taka fram úr koma reglu­lega inn á borð Úrskurð­ar­nefndar í vátrygg­ing­ar­málum þar sem ágrein­ingur er um hver er í rétti. Það kemur þeim sem ætlar að beygja oft á óvart að hann er ekki endi­lega í fullum rétti. Ástæða þess er að hann hefur þá ábyrgð að gæta að umferð sem á eftir kemur.

Oft á tíðum eru þetta alvarleg slys þar sem hraði þess sem er að taka fram úr er oft á tíðum nokkur. Við mat á sök í þessum slysum skipta línur á malbiki miklu máli þegar verið er að meta hver er í rétti. Það hvort lína sé t.d. heil, hálf­brotin (línan þrisvar sinnum lengri en bilið) eða full­brotin (línan einn þriðji af bilinu) getur skipt öllu. Það að hafa gefið stefnu­ljós hefur oft ekki úrslita­valdið enda oft á tíðum erfitt að sanna að stefnu­ljósið hafi verið gefið nægj­an­lega snemma. En stefnu­ljós skipta gríð­ar­lega miklu máli til að koma í veg fyrir þessi slys og þá stefnu­ljós sem er gefið með góðum fyrir­vara en ekki þegar búið er að hægja á sér eða rétt í þann mund sem verið er að fara að beygja.

Fréttasafn
Deila frétt