Fréttasafn

|

03.12.2020

Jólasería VÍS

Má bjóða þér á tónleika heima í stofu?

Þetta ár er búið að vera skrýtið og desember verður líklega ekki alveg eins og við eigum að venj­ast. Það er því mikil­vægt að halda í gleðina og passa upp á stemn­inguna heima í „jóla­kúl­unni“.

Til að hjálpa til við það bjóðum við þér upp á Jólaseríu VÍS, sem er úrval glæsi­legra tónleika í Sjón­varpi Símans. Í samstarfi við Sjón­varp Símans höfum við tekið saman sextán frábæra tónleika sem vonandi færa þér gleði yfir hátíð­irnar.

Hvernig horfir þú á Jólaseríu VÍS?

Tónleik­arnir eru allir í opinni dagskrá í boði VÍS og það eina sem þú þarft að gera til að njóta þeirra er að stilla á Sjón­varp Símans á réttum tíma. Það er því vissara að kynna sér dagskrána vel. Ef þú ert með áskrift hjá Sjón­varpi Símans getur þú svo nálgast tónleikana hvenær sem er í Sjón­varpi Símans Premium.

En við stoppum ekki hér, því við bjóðum upp á skemmti­lega tónleika alveg inn í nýja árið.

  • 26. desember - Jólastuð Samma

  • 27. desember - Helgi Björns - Afmæli í Höll­inni

  • 28. desember - Stefán Hilmars - 50

  • 29. desember - Todmobile ásamt Steve Hacket úr Genesis

  • 30. desember - Tíma­móta­tón­leikar Nýdönsk

  • 1. janúar - Ólafur Arnalds

  • 2. janúar - Happy Hour með Ragga Bjarna

  • 3. janúar - GusGus í Hörpu

Njótum þess að eiga góðar stundir með okkar fólki, pössum upp á hvert annað og jóla­skapið, kertin, reyk­skynj­arana og slökkvi­tækin.

Gleði­lega hátíð!

Fréttasafn
Deila frétt