Fréttasafn

|

03.07.2020

Íslenskt sumar

Framundan er ein stærsta ferða­helgi ársins ─ sem er ekki skrýtið því nú skartar landið sínu fegursta. Það nefni­lega jafnast ekkert á við íslenskt sumar.  Fugla­söngur í guðs­grænni nátt­úr­unni, lækj­arnið í faðmi hárra fjalla og svo drottn­ingin sjálf ─  sólin hátt á lofti. Ógleym­an­legar minn­ingar með fjöl­skyldu og vinum. Er hægt að biðja um meira?

Við skulum leggja okkur fram og skapa góðar minn­ingar. Leggjum grunninn að öruggu fríi. Með nokkrum atriðum getum við tryggt öryggi fjöl­skyld­unnar ─ þannig að allir komi heilir heim úr frábæru fríi. Áður en lagt er í ´ann þá er mikil­vægt að fara vel yfir veður­spána. Hugaðu sérstak­lega að vinda­spánni ef þú ætlar að taka eftir­vagninn með. Ef þú ætlar að elta sólina, ekki gleyma sólar­vörn­inni.

Við skulum aldrei gefa afslátt af bílbelta­notkun ─ notum alltaf bílbelti ─ sama hversu stutt vega­lengdin er og hvar við erum að keyra. Passaðu uppá á að allir í bílnum séu með beltin spennt. Svo er mikil­vægt að skorða farang­urinn vel af í bílnum, svo hann fari ekki á flug ef þú þarft að nauð­hemla. Hugaðu að hrað­anum ─ keyrðu alltaf á löglegum hraða. Ef þú ætlar að taka framúr næsta bíl, taktu þá tillit til aðstæðna. Eru aðstæður í lagi ─ má ég taka framúr? Ekki gleyma að vera úthvíldur áður en lagt er af stað. Ef þú finnur fyrir þreytu, skaltu leggja bílnum og fá þér kríu.

Dragðu vel úr hrað­anum þegar þú kemur á malar­veg. Gættu vel að steinkasti og hægðu vel á þegar þú mætir öðrum bíl. Ef rúðan brotnar vegna steinkasts á malar­vegi er gott að setja bílrúðu­límmiða yfir sprung­una, en athugaðu að hún má ekki vera stærri en ca. 100 króna peningur að stærð. Vertu með fulla athygli við akst­urinn ─ og láttu símann alveg vera. Ekki borða á meðan þú ert að keyra og láttu aðra um að stjórna tónlist­inni. Þá ertu í topp málum!

Þegar þú ert kominn á tjald­svæðið, vertu þá vakandi fyrir öllum börn­unum sem eru þar að leik. Gott er að láta einhvern leið­beina sér, ef bakka þarf með eftir­vagn­inn. Svo má ekki gleyma því að börnin eru eflaust spennt að fara að leika sér ─ því er mikil­vægt að fara með þau um svæð­ið.  Bentu þeim á kenni­leiti svo þau rati um svæðið. Svo þegar búið er að tjalda og allt klárt, skaltu huga að eldvörnum. Ekki gleyma að taka með þér eldvarn­arteppi og slökkvi­tæki. Passaðu líka uppá gasið.

Góða ferð um landið okkar ─ og njóttu þess í botn sem það hefur uppá að bjóða. Hafðu það gott í fríinu og komdu heil/heill heim.

Fréttasafn
Deila frétt