Fréttasafn

|

26.05.2020

Ísafjarð­arbær eflir eldvarnir í samvinnu við Eldvarna­banda­lagið

Eldvarna­banda­lagið og Ísafjarð­arbær hafa gert með sér samkomulag um að efla eldvarnir á heim­ilum starfs­manna og á vinnu­stöðum sveit­ar­fé­lags­ins.

Samkomu­lagið felur í sér að Ísafjarð­arbær innleiðir eigið eldvarna­eft­irlit í stofn­unum sínum í haust. Tilnefndir verða 30-35 eldvarna­full­trúar. Þeir munu fá tilskilda fræðslu og annast síðan mánað­ar­legt og árlegt eftirlit með eldvörnum á vinnu­stöðum sveit­ar­fé­lagsins samkvæmt gátlistum Eldvarna­banda­lags­ins. Allt starfs­fólk sveit­ar­fé­lagsins fær jafn­framt fræðslu um eldvarnir heim­il­isins og á vinnu­stað og eintak af handbók Eldvarna­banda­lagsins um eldvarnir heim­il­is­ins. Eldvarna­banda­lagið leggur til allt fræðslu­efni án endur­gjalds en Slökkvilið Ísafjarð­ar­bæjar annast fræðslu fyrir eldvarna­full­trúa og starfs­fólk. Um 420 manns starfa hjá Ísafjarð­arbæ.

Eldvarna­banda­lagið hefur á undan­förnum árum átt sambæri­legt samstarf við fjölda sveit­ar­fé­laga með góðum árangri. Að samstarfi loknu fer fram sameig­in­legt árang­ursmat og hefur í öllum tilvikum komið í ljós að samstarfið hefur skilað sér í auknum eldvörnum bæði á heim­ilum starfs­fólks og í stofn­unum viðkom­andi sveit­ar­fé­laga.

Samkomu­lagið felur jafn­framt í sér að stofn­anir Ísafjarð­ar­bæjar innleiða verklags­reglur Eldvarna­banda­lagsins um loga­vinnu, en í þeim er kveðið um á nauð­syn­legar varúð­ar­ráð­staf­anir sem viðhafa þarf þegar unnið er með opinn eld eða neista. Ennfremur setur Ísafjarð­arbær sér og stofn­unum sínum eldvarna­stefnu að fyrir­mynd Eldvarna­banda­lags­ins.

Gert er ráð fyrir að fræðsla og annar undir­bún­ingur fari fram síðsumars og í haust og að eigið eldvarna­eft­irlit verði fram­kvæmt hjá Ísafjarð­arbæ frá og með 1. október næst­kom­andi.

Myndin var tekin við undir­ritun samn­ingsins í stjórn­sýslu­húsinu á Ísafirði 25. maí. Frá vinstri: Garðar H. Guðjóns­son, fram­kvæmda­stjóri Eldvarna­banda­lags­ins, Gísli Níls Einars­son, stjórn­ar­maður í Eldvarna­banda­laginu og starfs­maður VÍS, Birgir Gunn­ars­son, bæjar­stjóri Ísafjarð­ar­bæjar, og Sigurður Arnar Jóns­son, slökkvi­liðs­stjóri Slökkvi­liðs Ísafjarð­ar­bæjar.

Fréttasafn
Deila frétt