Fréttasafn

|

29.07.2020

Höfum skyn­semina að leið­ar­ljósi

Versl­un­ar­manna­helgin hefur löngum verið okkar stærsta ferða­helgi. Höfum gleði og skyn­semi í forgrunni um hana.

Versl­un­ar­manna­helgin verður með breyttu sniði í ár vegn­a Covid-19. Færri verða á ferð­inni þar sem ­mörg­um ­skipu­lögðum útihá­tíðum hefur verið aflýst og ber þar helst að nefna Þjóð­hátíð í Eyjum. Margir koma samt saman til að njóta þess­arar löngu helgar og gera eitt­hvað skemmti­legt, sama hvort það sé að fara í bústað, eitt­hvert að tjalda eða hvað það er sem hugurinn girn­ist. Við hvetjum alla til að ganga hægt um gleð­innar dyr, muna k­urt­eis­is­bilið og þvo sér oft um hend­urnar og spritta sig á almenn­ings­stöðum vegna nýlegra Covid-19 smita.

Veðrið verður vænt­an­lega ekki upp á marga fiska og geta eigendur eftir­vagna, húsbíla og annarra stærri farar­tækja þurft að gera ­ráð­staf­an­ir ­vegna vind­hviða. Allir vilja koma heilir heim og því þurfum við að sýna skyn­semi í umferð­inni. Nota örygg­is­búnað og hafa hann rétt ­festan. Ökumenn að vera úthvíldir, án vímu­efna og ein­blína á akst­ur­inn. Virða hámarks­hraða og sleppa framúrakstri þegar aðstæður eru varhuga­verðar og sýna þolin­mæði ef langar bílar­aðir mynd­ast.

Njótum þess að ferðast um landið og skiljum við það eins og þegar við komum að því, ef ekki betur.

Fréttasafn
Deila frétt