Fréttasafn

|

07.01.2020

Gul viðvörun fyrir allt landið

Gul viðvörun er fyrir allt landið í dag og í raun leið­inda­veðri spáð meira og minna út vinnu­vik­una. Við hvetjum alla til að taka fullt mark á viðvör­unum og skoða færð. Sér í lagi, ef þú ert að fara yfir heiðar eða aka við fjöll á þekktum vinda­stöðum.

Á suðvest­ur­horninu er í dag spáð SV 25 m/sek meðal­vindi í opinni vindátt. Hætta getur verið á eigna­tjóni í slíku veðri. Huga þarf sérstak­lega að lausum munum utan­dyra, hurðum þegar þær eru opnaðar eða akstri þegar ekið er um í þeirri færð sem verður. Spáð er að veðrið byrji milli kl. 14 og 15 og getur skyggni orðið erfitt, krapa­hríð, slæmt skyggni og hálka sem getur verið akandi og gang­andi erfið. Gott er að taka mið af þessum aðstæðum þegar farið er heim úr vinnu, börn sótt og frístundir skipu­lagðar. Veðrið gengur svo yfir landið, en ekki fer að lægja t.a.m. á höfuð­borg­ar­svæðinu fyrr en undir morgun.

Fréttasafn
Deila frétt