Fréttasafn

|

13.02.2020

G.RUN hlaut forvarna­verð­laun VÍS

Örygg­ismál og forvarnir voru til umræðu á Forvarna­ráð­stefnu VÍS sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica í dag. Yfir­skriftin var ,,Hvað brennur á þínu fyrir­tæki? Ráðstefnan, sem var fyrst haldin árið 2010, hefur skapað sér sess sem einn fjöl­sótt­asti viðburður sinnar tegundar á Íslandi. Fjöl­mennt var á ráðstefn­unni en yfir 300 manns hlýddu á erindi sérfræð­inga og stjórn­enda sem deildu reynslu sinni af forvörnum og örygg­is­málum.

Forvarna­verð­laun VÍS voru einnig afhent í dag en verð­launin hlýtur það fyrir­tæki sem þykir skara fram úr í örygg­is­málum og er öðrum fyrir­tækjum góð fyrir­mynd. Að þessu sinni hlaut sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið G.RUN forvarna­verð­launin. G.RUN, sem er rótgróið fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki, sérhæfir sig í veiðum og vinnslu á bolfiski. Í upphafi árs 2019 opnaði fyrir­tækið nýja og vel útbúna fisk­vinnslu þar sem örygg­is­málin voru sett í fyrsta sæti. Fisk­vinnslan er ein sú tækni­leg­asta á landinu og er með eitt öflug­asta bruna­varn­ar­kerfi sem völ er á. Að auki, er fisk­vinnslan útbúin tækni­legum öryggis- og forvarna­bún­aði. Aðbún­aður og öryggi starfs­manna er til mikillar fyrir­myndar og endur­speglar umhyggju fyrir starfs­fólk­inu.

Helgi Bjarna­son, forstjóri VÍS. ,,Það er okkur mikill heiður að verð­launa viðskipta­vini okkar sem standa sig framúrsk­ar­andi vel í örygg­is­málum. G. RUN á heiður skilið fyrir áherslur sínar á forvarnir og örygg­ismál og er svo sann­ar­lega öðrum fyrir­tækjum góð fyrir­mynd.“

Fréttasafn
Deila frétt