Fréttasafn

|

02.10.2020

Góður frágangur er gulls ígildi

Allir vilja koma að sumar­húsi sínu í sama ásig­komu­lagi og þeir skildu við það.

Reynsla okkar af tjónum síðustu ára sýnir hversu mikil­vægt er að vanda fráganginn eftir veru í sumar­húsi. Vetur konungur minnti hressi­lega á sig síðasta vetur og við skulum hafa það að leið­ar­ljósi og vera eins vel undir­búin fyrir komandi vetur og hægt er.

Skrúfa fyrir neyslu­vatn

Tjón vegna vatnsleka verða oft alvarleg í sumar­húsum. Þau uppgötvast gjarnan ekki fyrr en eftir nokkra daga eða vikur og eru dæmi um altjón vegna þeirra. Algengt er að vatns­tjónin verði út frá neyslu­vatni en tiltölu­lega auðvelt er að minnka líkur á slíkum tjónum.

  • Mikil­vægt er að skrúfa fyrir inntak heita og kalda vatnsins og tæma vatn úr lögnum t.d. með því að skrúfa frá krana þar til vatnið hættir að renna. Ef þú lánar sumar­húsið þitt, er mikil­vægt tryggja skilning á þessum frágangi.

  • Aftengja gaskúta t.d. frá grilli.

  • Fylgstu vel með lögnum í vaska­skápum og skildu skápa eftir opna, sér í lagi ef þeir eru á útveggjum, þá helst hærra hita­stig inni í þeim.

  • Ef lokað kerfi er á húshitun, skaltu tryggja að frost­lögur sé í lagi, t.d. ekki of gamall.

Lausir munir utan­dyra

Gott viðhald á sumar­húsinu og skjól­veggjum minnkar líkur á foktjóni ásamt því að ganga frá lausum munum utan­dyra eins og útihús­gögnum, grilli, trampólíni og loki á heitum potti. Öryggis­kerfi geta svo gefið góðar upplýs­ingar um stöðu mála þegar enginn er í bústaðnum t.d. með því að vera með bústaðinn í mynd, fá skilaboð í símann ef breyting verður á hita og raka, ef vatn fer að leka, ef eldur kviknar eða brotist er inn. Ef þú vilt frekari upplýs­ingar um forvarnir t.d. bruna og innbrot þá hvetjum við þig til að fara á vis.is.

Fréttasafn
Deila frétt