Fréttasafn

|

26.06.2020

Góða ferð um landið

Eflaust er fátt yndis­legra en fugla­söngur og lækj­ar­niður í guðs­grænni nátt­úr­unni. Sumarið er mætt með allri sinni dýrð og eflaust ferða­hugur í mörgum. Ferðalög með eftir­vagna er einfaldur ferða­máti og veitir frelsi til þess að elta veðrið. Mikil­vægt er tryggja að allt fari vel og að eftir­vagninn sé í góðu standi. Alvar­leg­ustu slysin verða þegar vagn­arnir losna aftan úr bílnum á ferð, fjúka útaf eða rása svo mikið að þeir fari yfir á rangan vegar­helm­ing. Tryggjum að ferðin verði góð og allt sé í topp­st­andi.

Mikil­vægt er að huga að eftir­far­andi:

  • Pössum að fara með vagninn í lögbundna skoðun.

  • Eftir­vagninn má ekki vera of þungur fyrir bílinn (sjá hámarks­þyngd í skrán­ing­ar­skír­teini).

  • Vertu viss um að legur, dekk, ljósa­bún­aður og allur tengi­bún­aður sé í lagi.

  • Að ökurétt­indi nái yfir saman­lagða þyngd bíls og eftir­vagns.

  • Farðu vel yfir búnað og teng­ingar við gas.

  • Gættu þess að skrúfað sé fyrir gas eftir notkun.

  • Hafðu eldvarna­búnað til staðar.

  • Notaðu örygg­isvír þegar vagninn er dreg­inn.

  • Notaðu fram­lengda hlið­ar­spegla ef vagninn byrgir sýn.

  • Skoðaðu veðurspá áður en lagt er af stað.

  • Tryggðu að svæðið fyrir aftan sé autt þegar þú þarft að bakka.

  • Aktu með sérstakri gát á tjald­svæðum.

  • Farðu eftir umferð­ar­lögum og miðaðu hraða ávallt við aðstæður.

Fréttasafn
Deila frétt