Fréttasafn

|

08.10.2020

Góð dekk skipta öllu máli

Þar sem dekk hvers og eins ökutækis er eini snerti­flötur þess við veginn er eins gott að þau séu góð.

Góð dekk eru án efa einn af mikil­vægum örygg­is­þáttum hvers og eins ökutækis. Við hvetjum alla til þess að ganga úr skugga um að dekkin henti vel til vetr­arakst­urs. Hvort sem þau eru heils­árs- eða vetr­ar­dekk, þá þarf mynst­urs­dýptin að lágmarki að vera þrír milli­metrar og loft­þrýst­ingur þeirra í lagi. Svo skemmir ekki fyrir að tjöru­hreinsa dekkin reglu­lega til þess að auka gripið.

Á góðum dekkjum eykst stöð­ug­leiki, heml­un­ar­vega­lengd verður styttri, minni líkur á að bíllinn fljóti upp í bleytu og krapa ─ og eyðslan verður minni.

Ef þú þarft að kaupa ný dekk þá hvetjum við þig til þess til að kynna þér fríð­inda­síðu okkar. Þar getur þú fengið allt að 25% afslátt af dekkjum.

Merk­ingar vetrar- og heils­árs­dekkja

Merk­ingin sem gefur til kynna að dekkin séu heils­árs­dekk er M+S (mud/snow-slabb/snjór) og merk­ingin fyrir vetr­ar­dekkin er fjall með snjó­korni í miðju. Þær er að finna á hlið dekkj­anna.

Loft­þrýst­ingur dekkja

Rangur loft­þrýst­ingur veldur því að dekkin slitna fyrr, eyðsla eykst, heml­un­ar­vega­lengd lengist og hætta á að missa stjórn á bílnum verður meiri. 

Fréttasafn
Deila frétt