Fréttasafn

|

29.12.2020

Gleði­legt ár

Megi nýja árið vera okkur öllum gott og heilla­ríkt.

Þá er þetta skrítna ár senn á enda. Vonandi kemur aukið frelsi á næsta ári til þess að hitta þá sem okkur langar. Frelsi til samskipta án þess að vera hræddur við að smitast af COVID-19. En umfram allt, förum inn í nýja árið með gleði og öryggi að leið­ar­ljósi.

Förum varlega með flug­eldana um áramótin. Munum að röng meðhöndlun þeirra getur verið dýrkeypt. Höldum áfram með þá góðu þróun að slysum um áramót fari fækk­andi.

Njótum áramót­anna og megi nýja árið færa okkur gleði og öryggi.

Fréttasafn
Deila frétt