Fréttasafn

|

03.09.2020

Ferskir vindar um nýjan vef

Við erum stolt af nýjum og endur­bættum vef VÍS. Nýir ferskir vindar hafa farið um vefinn og við erum ánægð með útkom­una.

Nú styður vefurinn betur við þær staf­rænu þjón­ustu­leiðir sem eru í boði hjá okkur. Stærsta þjón­ustu­skrif­stofan okkar er nefni­lega á netinu og er opin allan sólar­hring­inn. Nýi vefurinn okkar er einnig í takt við nýja ásýnd okkar.

Við höfum einnig lagt okkur fram um að fækka flækj­unum með því að útskýra vöru­framboð okkar með einföldum hætti, t.d. með því að útskýra hvað sé bætt og hvað ekki.

Við munum halda áfram að þróa og endur­bæta vefinn okkar. Ef þú hefur einhverjar athuga­semdir eða ábend­ingar, ekki hika við að hafa samband við okkur.

Fréttasafn
Deila frétt