Fréttasafn

|

07.07.2020

Farið að heiman

Átta hlutir til að hafa í huga þegar farið er að heiman í sumar, hvort sem það er í bústað, útilegu eða hring­ferð um landið.

Margir eru að gera og græja þessa dagana þar sem þeir ætla að bregða sér að heiman í fríinu. Klikkum ekki á að skilja þannig við heim­ilið að sem mestar líkur séu á að það sé eins og við skildum við það þegar við komum heim á ný.

  • Tökum raftæki úr sambandi og slökkvum á fjöltengjum.

  • Skrúfum fyrir vatn að vatns­tengdum vélum.

  • Biðjum einhvern um að taka póstinn og slá jafnvel grasið ef á að vera lengi í burtu.

  • Höfum ljós logandi á mismun­andi stöðum en margar lausnir eru til að tímastilla ljós.

  • Látum verð­mæti innan­dyra ekki sjást utan frá.

  • Geymum ekki sláttu­vél, hjól eða önnur verð­mæti utan dyra.

  • Lokum gluggum og krækjum þá aftur.

  • Læsum útidyrum og látum öryggis­kerfi vakta húsið.

Gleymum svo ekki að segja nágrann­anum frá því að við séum að fara. Ökum síðan með gát og pössum uppá að hafa verð­mæti eins og síma og tölvu ekki sýnileg inni í bílnum á ferða­lag­inu.

Fréttasafn
Deila frétt